fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Þetta var það flókið mál að það var erfitt fyrir nefndarmenn, þar sat sá sem hér stendur, í umhverfis- og samgöngunefnd, að halda þræði í svona flókinni löggjöf og við héldum að lokum að við værum að ná góðri niðurstöðu um málið en mig grunar og maður hefur átt samtöl við þá sem starfa í greininni og þekkja til fjarskiptamálanna — ég satt að segja veit ekki hvort menn séu tilbúnir að koma undir nafni og tjá áhyggjur sínar. En það er orðið þannig að þegar við ræðum fjarskiptakerfin okkar og allt sem þeim tengist þá eru bara, eins og hv. þingmaður kom inn á áðan, allt undir, gjörsamlega allt. Meira að segja bílarnir sem við keyrum orðið, 85–90% af seldum bílum eru rafmagnsbílar og þetta eru tölvur á ferðinni, tölvur á fjórum hjólum. Gríðarlega flókinn búnaður og þó að það séu ekki rafmagnsbílar og þó að það sé dísil eða bensín þá eru þeir með alls konar kerfi sem ganga þar. Ég vil bara halda því á lofti raunverulega hvað er búið að gerast vegna þess að við ræðum þetta nú mjög sjaldan hér í þingsal og almennt erum við Íslendingar held ég svolítið græn í því hvað gengur á í þessum málum á heimsvísu.
Að mínu viti er stærsta ógnin fyrir íslenskt samfélag í þessu sambandi við fjölþáttaógnir og annað, það eru drónar. Svo skulum við líka hafa í huga að ein skýrslan hjá mér á NATO-þinginu var einmitt um mikilvæga innviði og þar með í sjó. Það þarf ekkert að slíta sæstrengina. Það er hægt að gera þetta bara með hugbúnaði og stoppa kerfin af. En það er af nógu að taka þessu og kannski held ég bara ræðu á eftir um eitthvað af þessum punktum sem ég hef áhyggjur af.