fjarskipti o.fl.
Virðulegur forseti. Það er flókið mál að halda þræði. Ég tengi mjög við þessi orð hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar. Þau minna mig líka á þegar ég var í hv. atvinnuveganefnd á mínu fyrsta þingi hér sem kjörinn fulltrúi og við vorum að fara yfir raforkulögin. Mér verður líka stundum hugsað til þess. Við erum að fjalla um mjög flókna hluti hér á þessari löggjafarsamkomu og þarna eru dæmi um mál sem gætu ekki verið nær okkur í daglega lífinu okkar, það er rafmagnið og fjarskiptin. Þetta er eitthvað sem við stólum á og eitthvað sem við lifum við og lifum varla án. En svo þegar við þingmenn erum að fjalla um þessa lagabálka og tæknilegar útfærslur á löggjöfinni þá get ég alveg tengt við þessi orð að þetta séu flókin mál og erfitt að halda þræði vegna þess að þetta er ofboðslega tæknilegt og auðvitað erum við hér sérfræðingar í að setja okkur inn í alls konar mál og sérhæfum okkur svolítið inn í okkar nefndum í ákveðnum málaflokkum. En auðvitað eru þetta oft miklu stærri spurningar en bara nákvæmlega þær sem við erum að fjalla um hverju sinni og tek raforkulögin sem dæmi. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður tengi við það en við vorum nú að kljást við þetta saman á þeim tíma. En þetta eru svona stórar hugmyndir um eitthvað sem er samt eins nálægt okkur í okkar daglega lífi og hægt er.
Ég tengi líka við það sem hv. þingmaður fór hér inn á, að við eigum allt undir, ég meina, hvort sem það er aðgangur að húsnæði eða öðru. Þetta er allt í símanum. Ég hugsaði um daginn: Hvað gerist ef síminn hættir að virka, hvar er maður þá raunverulega? Jafnvel vegabréf, skilríki og annað er allt komið inn í þetta tæki. Ég held að það skipti miklu máli þegar við erum að setja löggjöf og erum að reyna líka að tryggja neytendavernd og reyna einhvern veginn að tryggja einhvers konar öryggi á þessu sviði, hvort sem er varðandi dróna eða annað, að við séum svolítið vel vakandi fyrir því hvar almannahagsmunirnir liggja og hvernig við getum tryggt sem mest öryggi almennings á því sviði.