158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

fjarskipti o.fl.

281. mál
[17:08]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég tek undir það sem kom fram í máli hv. þingmanns Maríu Rutar Kristinsdóttur varðandi flækjustig mála. Sá sem hér stendur var á þarsíðasta kjörtímabili í atvinnuveganefnd þegar endurskoðun fór fram á raforkulögunum þar sem allt var tekið í gegn, væntanlega 2019 eða 2020. Aðeins var komið inn á það í umræðunni áðan en þá breyttum við í nefndinni því sem varðaði nýtingu á glatvarma, sem hafði ekki verið í löggjöfinni. Það var unnið í nefndinni og tengingar gerðar beint frá virkjunum við atvinnustarfsemi í fyrsta skipti með ákveðnum hætti.

Það var skammur tími til að undirbúa sig fyrir þessa umræðu en ég held að einhver mynd sé á þessu og nokkrir punktar þegar maður hleypur í gegnum þetta. Ég tek undir með hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur um varnir gegn netsvikum. Það er gríðarlega mikilvægt að netöryggissveitin fái heimild til að halda lista yfir grunsamleg lén og fjarskiptafyrirtæki og geti lokað sjálfvirkt fyrir aðgang að þeim í nafnaþjónustu. Þegar þetta mál var til umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd, örugglega í byrjun síðasta kjörtímabils myndi ég halda, þá gekk það ekki í gegn í umræðunni. Það verður örugglega mikið af umsögnum og annað og mikil umræða um þessi mál. Mjög margir punktar eru hér um persónuvernd og þjóðaröryggi. Hvar á að mætast? Hvar mætast sjónarmiðin? Mig grunar að almennt hafi þjóðaröryggisviðmiðin náð svolítið lengra á síðustu árum en var fyrir kannski þremur, fjórum árum. Ég held að skilningurinn hafi kannski aðeins aukist á þessu. Við sjáum að vöxturinn í netárásum og netsvikum og slíku er stjarnfræðilegur. Í lok síðustu viku, á föstudaginn, höfðum við tveir þingmenn, sá sem hér stendur og hv. þm. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar, tækifæri eftir Norðurlandaráðsþingið í Helsinki að heimsækja öndvegissetur um fjölþáttaógnir í Helsinki á föstudagsmorgun áður en við fórum í flugið heim. Það er náttúrlega mjög fróðlegt, og ég hvet alla til að kynna sér það sem hafa tök á því, að sjá hvað er verið að gera þar og það sem hefur verið skrifað um þessi mál. Við fórum inn í þetta setur — ætli það hafi ekki verið 2022 sem við sendum okkar fulltrúa, það fór inn í fjárlögin árið áður eða eitthvað svoleiðis — um fjölþáttaógnir í Helsinki, sem er samstarfsvettvangur NATO og Evrópusambandsins, og síðan öndvegissetur um netöryggi í Tallinn. Við fórum inn í þau fyrir örfáum árum og það mál var tekið fyrir í gegnum fjárlög, fjárlaganefnd og þingið. Ég hvet sem flesta þingmenn til að kynna sér þetta. Ég sagði áðan að við værum svolítið græn í þessu og þetta er svona til þess að bæta úr því.

Auðvitað er ég svolítið litaður af því að hafa verið níu ár í NATO-þinginu. Þegar maður starfar þar fer maður að sjá ansi margt sem tengist heimsóknum og umræðum þar innan búðar. Það verður að segjast að sú umræða fer kannski fram einhverjum árum áður en hún verður almenn, en rosalega rætist mikið af því sem menn hafa áhyggjur af. Það hefur verið gríðarlega áhugavert að mörgu leyti.

Það sem er kannski svolítið nýtt í þessu frumvarpi er vélræn skimun tölvupósta og SMS. Fjarskiptafyrirtæki fá heimild til að skima efni skilaboða án mannlegrar íhlutunar til að fyrirbyggja svik og verja fjarskiptanet. Áskilnaður um vinnsluna verði í viðskiptasamningi við notendur og framkvæmdin útfærð í reglugerð. Þannig skil ég löggjöfina. Það verður áhugavert að sjá hvernig þingið tekst á við þetta vegna þess að þarna er raunverulega verið að færa þetta yfir í vélræna þætti. Sama umræða var um netárásir og netsvik um árið, að koma þessu úr því að það tæki kannski sex, sjö tíma að bregðast við netárásum eða -svikum. Þá var líka rætt um að með þessum hætti væri kannski hægt að koma viðbragði niður í einhverjar mínútur. Hagsmunir hafa breyst svo gríðarlega að fróðlegt verður hvernig þingið tekst á við það sem snýr að þessu í dag.

Það var komið inn á og kannski ræddum við það fyrr í umræðunni viðbrögð við drónaógninni. Þau tengjast 3. gr. frumvarpsins, að stjórnvöld á sviði löggæslu, almannavarna og þjóðaröryggis geti, þegar brýnir hagsmunir eru í húfi, truflað, útilokað eða yfirtekið merkjasendingar til að stöðva hættuleg ómönnuð loftför eða annan búnað. Það sem verið er að leyfa hér er að íslenska framkvæmdarvaldið geti beitt „jamming“ eða truflun á fjarskiptamerkjum. Sá sem hér stendur hefur bent á að varðandi flug og slíkt sé það hættulegt og það hefur farið mjög vaxandi, sérstaklega í kringum stríðssvæði, bæði „jamming“ og „spoofing“. „Spoofing“ er enn þá alvarlegri hlutur en það er þegar flugvél er annars staðar en hún heldur að hún sé í aðflugi, í fjalllendi t.d. Það getur verið mjög alvarlegt. Því er stórt stökk að íslensk stjórnvöld séu að koma því í löggjöf að stjórnvöld geti farið að trufla sjálf. Það verður áhugavert að fá fregnir af því og nefndin tekur væntanlega fyrir hvernig þessu er háttað annars staðar, t.d. í Evrópu og öðrum NATO-ríkjum, og hvernig staðið er að þessum málum.

Neyðarboð í farsíma eru eitt mál í frumvarpinu sem lengi hefur verið mikil umræða um, að tryggja hvernig eigi að standa að þeim. Í frumvarpinu er talað um að skýrar reglur verði um skyldu fjarskiptafyrirtækja til að senda viðvaranir og um skiptingu kostnaðar. Við sjáum netárásir og annað sem gerðist í nótt eða í gær úti í hinum stóra heimi, fjölþáttaógnir, og hvað það getur verið ótrúlegt inngrip að komast inn í almannavarnakerfi og það sem sent er út í SMS-um.

Síðan er þessi punktur um þagnarskyldu vegna varaleiða fjarskipta, að upplýsingar um tæknilega högun, birgja og samninga við erlend ríki vegna neyðarfjarskipta ríkisins verði undanþegnar upplýsingarétti almennings. Þetta tengist að einhverju leyti því sem sá sem hér stendur hefur verið með fyrirspurnir um til ráðuneytanna um fjarskiptakerfi í sambandi við 78. gr. fjarskiptalaga, sem var upprunalega hugmyndin þegar maður fór að velta þessu aftur fyrir sér; það er búnaðurinn á bak við, þessar varaleiðir og síðan almennt það að við eigum allt undir fjarskiptakerfunum og þá eru það birgjar og annað, hvernig þessi kerfi eru byggð upp, sem skiptir máli. Ég hef fengið eitt svar og mörg eru vonandi á leiðinni. Það sem verið er að leita eftir í fyrirspurninni er hvort við stöndumst í grunninn kröfur Atlantshafsbandalagsins til aðildarríkjanna um þessi mál og hvar við stöndum í tengslum við það.

Einnig er komið inn á öflugra eftirlit og heimildir til stjórnvaldssekta vegna óheimilla markaðssamskipta og skýra tilkynningarskyldu vegna öryggisbrests. Mjög víða er komið við í frumvarpinu og er það raunverulega að mörgu leyti viðbragð við umræðunni þegar síðasta stóra endurskoðun var 2022. Þetta eru bara punktar sem maður tekur upp þegar maður les og fer töluvert hratt í gegnum málið. Maður sér alveg að þetta hefur verið stórt og flókið mál fyrir ráðuneytið og ég held að þetta verði stórt, mikið og erfitt mál, flókið og mikið verkefni fyrir umhverfis- og samgöngunefnd þingsins að takast á við. Ég vona að góður tími verði tekinn í þetta og öflug umræða. Það er spurning hvort jafnvel sé farið í of margt sem getur þá stoppað og hægt á málinu en við sjáum hvernig þetta allt saman fer fram í nefndinni.

Eins og ég kom inn á kemur þessi 3. gr. svolítið inn á mitt áhugasvið sem tengist „jamming“ og „spoofing“ en bara frá hinni hliðinni í þessu máli, sem er þá að ríkið sjálft og stofnanir þess geti komið með þessum hætti að málinu. Í þinglegri meðferð er náttúrlega mjög mikilvægt út frá persónuvernd og öðru að mörkun á þessum skimunarheimildum sé skoðuð vel sem og réttaröryggi við lokun léna og umfang þagnarskyldunnar. Ég held að það verði svolítið fróðlegt að sjá í meðförum þingsins hvernig litið er á sumt af þessu frá því sem var bara fyrir fjórum, fimm árum vegna þess hvernig heimurinn hefur þróast.

Það er einnig búið að taka út þessi helstu ákvæði varðandi fjarskiptasæstrengina. Væntanlega kemur ráðherrann inn í það síðar með einhverjum öðrum hætti varðandi þau mál og út frá því að verja sæstrengina okkar, þessa þrjá stóru og þann fjórða sem er minni og tengist Grænlandi. Hugmyndir eru nú þegar um töluvert mikla uppbyggingu í sæstrengjum í tengslum við uppbyggingu á gagnaverum og við sjáum hvað umhverfi okkar breytist hratt, m.a. með uppbyggingu gagnavera á Íslandi.

Ég hef sjálfur haft svolítinn áhuga á því, og kem kannski inn á það fyrst ég hef smá tíma, að koma með fyrirspurn inn í þingið í framhaldi af skýrslu sem var unnin í utanríkisráðuneytinu. Formaður starfshópsins sem leiddi þá vinnu, en þetta var á tímum þáverandi hæstv. ráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, var Haraldur Benediktsson þáverandi þingmaður. Hann vann vinnu með starfshópnum sem var raunverulega mörkun á ljósleiðarakerfi landsins með því að nota það sem var til á vegum íslensku ohf.-fyrirtækjanna sem eru í ríkiseigu, t.d. í öryggisfjarskiptum sem Landsnet og Landsvirkjun hafa verið að vinna með, og tengja það með öruggum hætti við ljósleiðarakerfið sem til er í landinu. Þá væri hægt að búa til miklu öflugra kerfi. Á þeim tíma var talað um að það þyrfti að leggja milljarð í þá framkvæmd til að styrkja kerfið ótrúlega mikið. Nú þegar þróunin hefur verið svona með gagnaver og gervigreindargagnaver, sem eru allt annar hlutur en Bitcoin-gagnaver, eru miklar kröfur um hvernig gagnaver eru tengd við ljósleiðaratengingarnar og það verður að segjast að þar eigum við mjög öflugar leiðir. Við erum að verja þetta. Það er spurning hvernig það tengist þessu frumvarpi en í lokin held ég að þetta væri eitthvað til að skoða og hvet ráðherra málaflokksins til að kynna sér hvaða tækifæri eru til staðar.

Það er svo sérstakt, herra forseti, að 55–60% af öllum fjárfestingum í gagnaverum í Evrópu í dag eru á Norðurlöndunum þar sem 5% íbúanna búa. Þær stuðla mjög að hagvexti á þessum svæðum. Það er vegna þess að þar er græn orka og innviðir til að takast á við svona verkefni. Það myndu sjálfsagt allir vilja vera með þetta í Þýskalandi, miðsvæðis í Evrópu, en þar eru ekki innviðir, græn orka eða orka almennt og verðið á orkunni er svo hátt að ekki er framkvæmanlegt að byggja upp þessa starfsemi þar. Þarna eru því klárlega tækifæri fyrir okkur. Þetta er ofboðslega flókinn málaflokkur eins og kannski hefur komið fram í þessari umræðu varðandi fjarskiptalögin og áðan var líka talað um raforkulögin. Þetta eru mjög flóknir hlutir en vonandi nær þetta mál líka að styðja við gagnaversiðnaðinn á Íslandi, sem gefur okkur miklar tekjur, og þá möguleika sem þar eru með gjörbreyttri stöðu sem fylgir gervigreindargagnaverum að búa til ný störf í landinu.