fjarskipti o.fl.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þær umræður sem hér hafa átt sér stað og fínar ræður, ekki síst hjá síðasta þingmanni, hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni. Þetta er flókinn málaflokkur og lagabálkar í evrópskri löggjöf um fjarskipti og tengdri löggjöf um stafræn mál eru mjög yfirgripsmiklir lagabálkar, svo sannarlega, og flóknir. En ég vil þó taka fram að Ísland varðandi fjarskipti er eitt best tengda land í heimi og það sýnir ákveðið samkeppnisforskot sem við höfum. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér og ber að þakka þeim sem hafa komið á undan okkur og mér í þessu embætti.
Eins og ég sagði í ræðu minni áðan þá er löggjöf um fjarskipti og tengda málaflokka í nærumhverfi okkar afar víðfeðmt málefnasvið sem er í stöðugri tæknilegri framþróun og hefur áhrif á daglegt líf okkar og fyrirtækja og jafnvel öryggi heilu samfélaganna. Við erum að vinna í þessu og við viljum halda áfram að vinna í þessu. Löggjöfin er og verður í sífelldri mótun í komandi framtíð og þetta frumvarp er svo sannarlega liður í þessari framþróun.
Varðandi netöryggi þá er þar undir þjóðaröryggi og öryggi samfélagsins og ég tel að eftir áramót og á næstu misserum verði það mjög framarlega í samfélagsumræðunni og í samfélaginu eins og önnur mál sem hafa komið á undanförnum árum, t.d. um persónuvernd sem var lykillöggjöf í Evrópusambandinu og var forgangsmál hjá síðasta framkvæmdastjóra, herra Juncker, sem var þá persónuverndarlöggjöfin á hinum stafræna innri markaði. Það er verið að búa til stafrænan innri markað í Evrópu og þar var persónuverndarlöggjöfin fremst í flokki. Af hverju var það? Jú, af því einstaklingurinn er varan á mörgum þessum síðum sem við þekkjum, hvort sem það er Facebook, Google eða hvað það er. Netöryggi mun koma á dagskrá. Núna er gervigreindin komin af stað og þarf ég ekki að fara nánar ofan í það en gagnaverin, þar eru miklar fjárfestingar hér á landi — þar mun Ísland svo sannarlega geta spilað stórt hlutverk sem land með ódýra raforku og gnægð raforku. Við erum eins konar Sádi-Arabía þegar kemur að raforku og raforka er svo sannarlega orkugjafi framtíðarinnar.
Það er rétt sem kom fram hjá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni varðandi Norðurlöndin að stór hluti fjárfestinga í gagnaverum er þar og það er út af ódýrri orku en ekki síst út af landfræðilegri stöðu okkar, það er gott að vera á köldum stað með gagnaver. Þetta verður líklega drifkrafturinn í efnahagslífi íslensku þjóðarinnar og mun sjá til þess að við munum áfram vera með bestu lífskjör í heimi eins og við erum í dag. Þá ræður úrslitum að við stöndum okkur vel í fjarskiptum og líka nettengingum og netöryggi svo við getum verið hér með öflugt samfélag á hinum stafræna innri markaði Evrópusambandsins og í heiminum.
Mig langar að minnast á það að í ár eru 120 ár síðan fyrsti fjarskiptastrengurinn kom til Íslands, sæsímastrengurinn. Hann kom á land á Seyðisfirði sumarið 1906 og var ritsímasamband við útlönd formlega opnað í ágúst það ár. Þetta var mikil lyftistöng fyrir íslenskt samfélag og tímamótaframkvæmd sem tengdi Ísland við umheiminn og rauf einangrun landsins með ákveðnum hætti. Hann var lagður frá Skotlandi í gegnum Færeyjar yfir til Seyðisfjarðar eins og gert hefur verið með nokkra sæstrengi síðan eins og Farice. Við erum með Farice, Danice og Íris, þrjá sæstrengi sem tengja Ísland við umheiminn. Það er gaman að benda á það að það voru gríðarlegar deilur á Alþingi á þessum tíma í aðdraganda lagningarinnar, hvernig strengurinn ætti að vera. Þetta er kallað Landssímadeilan mikla 1904–1905, og þá skiptist þetta í símamenn undir forystu Hannesar Hafsteins, fyrsta ráðherra Íslands, og svo loftskeytamenn undir forystu Skúla Thoroddsens sem vildu að tekin yrði upp nýja loftskeytatæknin, svokölluð Marconi-tækni, sem var þráðlaus. Hannes Hafstein keyrði þetta í gegn af miklu kappi og eftir á að hyggja reyndist ritsíminn mikil lyftistöng fyrir íslenskt efnahagslíf, sérstaklega fyrir sjávarútveginn. Af hverju var það? Jú, nú gat hann fylgst með fiskverði á erlendum mörkuðum í rauntíma og þannig var sennilega komin fyrsta tengingin á íslenskum sjávarafurðum við heimsmarkað sem er gríðarlega mikilvægt enn í dag. Hún heyrði svo sögunni til, morstæknin og ritsímatæknin, gamli ritsíminn, en í dag treystum við á flókna og ofurhraða ljósleiðarasæstrengi. Á starfsmannafundi í dag í ráðuneyti mínu þá fengum við að skoða með stækkunargleri svona ljósleiðaraþræði, sjá hversu þunnt þetta er. Það er mikill kopar í jörðu hérna í landinu sem er úreltur.
Það hversu hratt tækninni hefur fleygt fram, það er með hreinum ólíkindum. Við verðum að vera fremst á heimsvísu, fremst í heiminum hvað varðar ljósleiðaratæknina og að innleiða hana ef við ætlum að halda uppi lífskjörum í landinu og auka framleiðni með þessari nýju tækni og vera fullir þátttakendur í upplýsingatæknibyltingunni. Árið 1906 var Ísland eitt fátækasta ríki Evrópu og við erum núna eitt ríkasta land heims, í 6. sæti samkvæmt Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD. Til að vera það áfram þá skipta fjarskipti, netöryggi, nettengingar og stafræn tækni höfuðmáli. Þetta frumvarp er liður í því og ég mun svo sannarlega koma með fleiri frumvörp, ég veit að eftir áramótin mun ég koma með þingmál og við erum að vinna í þessu af fullum krafti. Og það er gaman að vita til þess að það eru ekki deilur um þetta í dag eins og var árið 1906. Við erum öll samstiga í þessu og ég held að við eigum að halda þeirri samstöðu áfram.