158. löggjafarþing — 25. fundur,  3. nóv. 2026.

starfslok forstjóra Landsvirkjunar.

[13:42]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál sem verið er að ræða hér og það sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson fór yfir áðan eru auðvitað einhverjar lausnir sem liggja fyrir en við erum að kalla eftir viðbrögðum vegna alvarleika málsins. Það lá alveg fyrir í upphafi máls að það væri eitthvað sem ætti eftir að koma fram. Þetta var allt saman mjög loðið og óskýrt hverjar ástæður voru fyrir því að forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ára starf kveður sér hljóðs og segir starfi sínu lausu og labbar út. Nú hefur komið í ljós að það svar sem hæstv. fjármálaráðherra gaf hér þinginu fyrr í vikunni um það hvað hefði átt sér stað stenst enga skoðun. Skrifleg gögn benda nú til þess að ráðherrann hafi sagt þinginu ósatt gegn betri vitund. Það er eitthvað það alvarlegasta sem á sér stað hér í þingsal, virðulegur forseti, ef ráðherrar augljóslega gegn betri vitund fara með rangt mál (Forseti hringir.) og greina þinginu ranglega frá upplýsingum og þar með þjóðinni og fjölmiðlum. Við þessu verður að bregðast, (Forseti hringir.) virðulegur forseti. Við þetta verður ekki unað vegna þess að ef þetta á að bíða fram í næsta mánuð eða næsta mánuð og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd taki mál upp þá erum við á mjög slæmum stað í lýðræði landsins.