158. löggjafarþing — 25. fundur, 3. nóv. 2026.
Störf þingsins.
[14:16]
Horfa
Jóhanna Ösp Einarsdóttir (Sf):
Frú forseti. Þegar ég var unglingur setti ég mér það markmið að ég myndi einhvern tímann flytja jómfrúarræðu á Alþingi. Og nú, einungis 320 mánuðum síðar, stend ég hér og byggi ræðuna á sama málefni og ég hafði þá valið en það eru málefni ungmenna á landsbyggðinni, en þó með öðrum áherslum þar sem ég tilheyri víst ekki þeim hópi lengur. Eins og segir í kvæðinu, með leyfi forseta:
Það var barn í dalnum,
sem datt ofan í gat,
en þar fyrir neðan
Ókindin sat.
Þessi orð úr gömlu íslensku kvæði, Ókindarkvæði, hafa fengið mig til að hugsa um göt í þeim kerfum sem þjónusta börn. Ég þekki af eigin raun að vera foreldri barns sem þurfti á aðstoð að halda eftir að hafa lent í áfalli. Barnið var 16 ára gamalt, á heimavist, fjarri fjölskyldunni, skólinn á Sauðárkróki, heimilið í Gufudalnum, barnaverndin á Ísafirði, félagsþjónustan á Hólmavík og þjónusta í Reykjavík. Öll þau sem þjónustuðu barnið voru bjargvættir, mættu fjölskyldunni með hlýju og fagmennsku og stóðu við bakið á okkur. En kerfin töluðu ekki saman og við tók rúntur á milli landshluta, oft í viku, vikum saman, mánuðum saman. Þegar barn flytur að heiman því það getur ekki sótt framhaldsnám í heimabyggð þarf að tryggja að kerfin tali saman og að þjónustan sé sem næst barninu. Í Ókindarkvæði fellur barnið ofan í gat og upplifir miklar hörmungar í kjölfarið en svo fær það farsælan endi. Með leyfi forseta:
Þangað til um síðir
þar kom maður einn;
upp tók hann barnið
og ekki var hann seinn.
Við þurfum að tryggja að börnin okkar falli ekki í gegnum götin í kerfinu, að kerfin tali saman og að þjónustuaðilar megi þjónusta börn miðað við aðsetur en ekki lögheimili.