158. löggjafarþing — 25. fundur,  3. nóv. 2026.

viðvera fjármála- og efnahagsráðherra í þingsal.

[15:28]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Mig langar rétt að koma hérna upp þar sem ég komst ekki í fyrri fundarstjórnina fyrr í dag um þetta alvarlega mál sem komið er upp. Það eru statt og stöðugt að koma fram meiri og ítarlegri upplýsingar um þetta mál sem kannski hófst með fyrirspurn hér í þingsal í óundirbúnum fyrirspurnum 19. október. Það virðist vera ansi slæmt ýmislegt sem er að gerast. Ég tek kannski það sem mér finnst — einn af þeim þáttum sem hefur kannski ekki komið mikið fram er bara formfesta, formfesta í stjórnun á Landsvirkjun og hvernig henni hefur verið háttað síðastliðið eitt og hálft ár og að það vanti eitthvað verulega upp á það. Þetta er gríðarlega stórt og mikilvægt miðað við þær upplýsingar sem eru að koma núna. Við erum að fjalla hérna um, ég vil segja langmikilvægasta fyrirtæki landsins, algjöra undirstöðu í okkar samfélagi sem Landsvirkjun er og sá rekstur sem þar hefur verið á vegum fyrirtækisins síðastliðin 60 ár, (Forseti hringir.) síðan 1965, og hefur haft gríðarleg áhrif á þetta land. Þetta er eitthvað sem við þurfum að halda — (Forseti hringir.) formfesta og eðlileg stjórnsýsla í landinu. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál.