Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í dag eru liðin 30 ár síðan ég lenti í umferðarslysi, slysi sem leiddi ásamt öðrum slysum til aðgerða á hálsi og mjóbaki. Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt — nei, það er ekki rétt. Gjafsókn þarf oft til að berjast við tryggingafélögin og það dugar oft ekki til. Gjafsókn, ég held að það sé jafn líklegt að ég fái fyrsta vinning í lottói og að ég fái gjafsókn. Ég er alveg sannfærður um að það eru meiri líkur í mínum tilfellum á að fá fyrsta vinning í lottói heldur en á að fá gjafsókn. Við beiðni um gjafsókn skal miðað við stofn útreiknings tekjuskatts og útsvars og fjármagnstekjur upp á 5.237.000 í árslaun. Þetta er minna en lágmarkslaun. Það eina sem gæti komið nálægt þessu væru lægstu ellilaun eða örorkulaun. Sé umsækjandi í hjúskap eða sambúð eru þetta 7.867.877 eða samtals fyrir hjón 655.000 á mánuði fyrir skatt. Lögmenn segja í nýlegum dómi Hæstaréttar að það sé kominn tími til að Alþingi uppfæri skaðabótalögin, og ég segi gjafsóknarlögin líka, og færi þau til nútímans og að boltinn sé hjá dómsmálaráðherra. Þar er ég innilega sammála. Skaðabótalögin eru úrelt og tryggja á engan hátt lengur tjónþola fullar bætur fyrir líkamstjón. Samkvæmt gildandi skaðabótalögum er miðað við lágmarkslaun eins og þau voru 1999, á síðustu öld. Í fyrrnefndu hæstaréttarmáli höfðu lágmarkslaun verið metin um 3,4 millj. kr. en hefðu hins vegar átt að fylgja launaþróun og hefðu þá verið 6,7 milljónir, tvöfalt hærri. Þar af leiðandi fer ekki á milli mála að dómurinn sem slíkur er skýr áskorun til dómsmálaráðherra um að gera einhverjar úrbætur í skaðabótalögum og það strax, ekki satt? Ríkisstjórnir undanfarinna áratuga gerðu ekkert. Hvers vegna? Núverandi ríkisstjórn mun breyta því. Erum við ekki sammála um það?