158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

Störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Heiða Ingimarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Málefni barna og ungmenna eru mér afar hugleikin. Málefni barna sem búa á landsbyggðinni snerta mig sérstaklega, enda er ég sjálf móðir fimm barna sem falla undir þá skilgreiningu. Það hefur marga kosti að búa fjarri skarkala höfuðborgarinnar; frelsið, nálægðin við náttúruna, stuttar vegalengdir þegar sinna á hversdagslegum verkefnum og samfélag sem minnir gjarnan á stóra fjölskyldu frekar en einstaklinga sem af tilviljun búa við sömu götu. Tækifæri, heilsa og valkostir barna og ungmenna ættu þó að vera þau sömu óháð búsetu. Margt hefur áunnist í þeim efnum undanfarið og skilningur á þeim áskorunum sem geta fylgt því að búa fjarri ýmiss konar grunnþjónustu og öðru sem snertir líf okkar á ólíkan hátt aukist að einhverju leyti. Það er þó mikilvægt að skerpa á því sem betur má fara, benda á þær áskoranir sem mæta þessum börnum og fjölskyldum þeirra. Dæmi eru um börn sem missa af tækifærum til að sækja íþróttamót, æfingabúðir, viðburði á vegum félagsmiðstöðva og annað vegna kostnaðar við ferðalög, uppihald og gistingu. Mörg þeirra barna sem svo sækja slíka viðburði búa við mun meira álag við að standa straum af þátttöku en þau sem þurfa að jafnaði ekki að ferðast langar vegalengdir. Vinnan og álagið snertir gjarnan allt heimilið. Val til náms í framhaldsskólum er skert og við lok þessa náms neyðast mörg þeirra til að standa á eigin fótum vilji þau stunda frekara nám. Ungmenni sem koma af heimilum sem treysta á greiðslu jöfnunarstyrks búa við það aukna álag að námsárangur þeirra hefur bein áhrif á bókhald heimilisins. Þá eru dæmi um fjölskyldur sem þurfa að forgangsraða læknaheimsóknum út frá fjölda ferðastyrkja.

Virðulegi forseti. Ég ítreka: Tækifæri, heilsa og valkostir barna og ungmenna ættu ekki og mega ekki einskorðast við fjárhag eða búsetu fjölskyldu þeirra.