ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Frú forseti. Hér í gær var fjallað um þessa þingsályktunartillögu sem við greiðum hér atkvæði um í dag. Vil ég koma því á framfæri sem framsögumaður málsins að hér láðist að gera grein fyrir því að við meðferð skv. 5. gr. var málið vissulega sent í samráð til hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Álit meiri hluta og minni hluta nefndarinnar — það láðist sem sagt að gera grein fyrir því að þeim álitum hafi vissulega verið miðlað til utanríkisráðuneytisins. Áréttast það hér með en ég tel að það hafi ekki áhrif á atkvæðagreiðslu þessa hvað varðar afléttingu stjórnskipulegs fyrirvara skv. 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Legg ég því til að þetta verði samþykkt.