ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Virðulegur forseti. Vegna orða hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur hér vil ég þakka henni fyrir að koma hingað upp og leiðrétta það sem fór fram hérna í umræðum um þetta mál. Mér fannst það bara vera með svo óskýrum hætti. Málið lýtur sem sagt að því að í gögnum málsins, í þingsályktunartillögunni sjálfri, í greinargerðinni, er í engu getið þess nefndarálits minni hlutans sem lá fyrir í málinu í hv. umhverfis- og samgöngunefnd þegar málið fór til samráðs í þeirri nefnd og samráðið og nefndarálitin voru send í hv. utanríkismálanefnd. Hér var ítrekað gerð athugasemd við þennan frágang skjala. Nú hefur loksins komið í ljós, eða einhver gengist við ábyrgð sinni í þessu máli, og ég vona framvegis í þessum EES-málum, í þessum innleiðingarhraða sem þau mál eru send á í gegnum þingið, að menn hugi betur að þessum vinnubrögðum.