158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

bann við hulningu andlits.

36. mál
[15:07]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Hér er Alþingi hvatt til að álykta um að fela dómsmálaráðherra að vinna frumvarp til laga um bann við því að hylja andlit sitt í opinberu rými. Þetta er gert að gefnu tilefni, m.a. í samhengi við sambærilegar breytingar víða á Vesturlöndum sem hefur verið ráðist í, hvort sem litið er til Danmerkur, Frakklands eða fleiri Evrópulanda þar sem sambærilegar lagabreytingar hafa verið gerðar á undanförnum árum og áratugum.

Að mínu mati, ef maður horfir á svona breytingar í því samhengi sem þær eru, þá er það auðvitað ákveðið óyndisúrræði að þurfa að kveða á um þetta í lögum. Ég held að frá öndverðu höfum við hér á Íslandi almennt miðað við það sé mjög óæskilegt að hylja andlit sitt alfarið á opinberum vettvangi. Það er óþægilegt fyrir þá sem kunna að eiga í samskiptum við mann af svo mörgum ástæðum og í margvíslegu samhengi. Í ákveðnum trúar- og menningarheimum er þetta hins vegar viðhaft sem algerlega gildur siður en hin hliðin á þessari tillögu er auðvitað að stemma stigu við því að menn séu að hylja andlit sitt í annarlegum tilgangi, eins og hefur reyndar líka borið á í mótmælum víða um Evrópu. Þannig að þetta er ekki einhlítt heldur margþætt og auðvitað snúið viðfangsefni.

Hér er vikið að trúfrelsi og öðrum mikilvægum þáttum þótt ég haldi og telji ljóst af gögnum málsins og öllu lögfræðilegu samhengi í umfjöllun um sambærilegar breytingar annars staðar að þetta teljist algerlega tækt út frá þeim grunni sem við byggjum á þegar við hugsum um slík mál. Þannig að það held ég að þurfi ekki að vera sérstakt áhyggjuefni í þessu sambandi heldur séum við að horfa á hagsmuni sem varða meiru hér; að koma í veg fyrir áður en það verður sérlega útbreitt hér að t.d. konur hylji andlit sín alfarið eins og er verið að víkja að í þessum breytingum. Ég hygg að það sé nokkuð breið pólitísk samstaða um að slík þróun væri ekki æskileg. Í þessu er auðvitað kveðið á um ákveðnar undantekningar í ákveðnu samhengi til þess að þetta sé nú byggt á málefnalegum grunni en gangi ekki nærri fólki með óþarflega grófum hætti. Engu að síður eru lagðar línur um það hvernig við viljum sjá þessi mál þróast í okkar samfélagi.

Af því að maður nefnir Danmörku þá hygg ég að það væri í anda þess sem ríkisstjórnin hefur stundum nefnt í sambandi við þennan málaflokk, að þoka honum í átt að því sem þekkist á Norðurlöndum, að ríkisstjórnin myndi styðja svona nokkuð og það eru nú, hvort sem það er hæstv. forseti Alþingis eða hæstv. utanríkisráðherra, einstaklingar innan stjórnar sem hafa lýst annaðhvort áhuga eða afdráttarlausum stuðningi við sambærilega aðgerð og er lögð til í þessari þingsályktunartillögu. Þetta er því ekki gripið úr lausu lofti heldur hefur þetta verið til umræðu mjög lengi en að mínu mati er þetta mjög eðlilegur tímapunktur fyrir land eins og okkar til að stíga þetta skref án þess að það sé um of íþyngjandi fyrir stóran hóp eða að það kalli á að menn líti svo á að við séum að brjóta gagnvart hinu eða þessu, ef þetta er framkvæmt eins málefnalega og hér er lagt til.

Það eru auðvitað ýmsar spurningar sem vakna í þessu. Ég hef auðvitað rætt um það í sambandi við t.d. útlendingastefnuna að kjarni málsins sé auðvitað að taka kerfin í gegn, endurskrifa útlendingalög til þess að íslensk stjórnvöld og almenningur, stjórnvöld sem fulltrúi almennings, nái almennilegum og viðunandi tökum á þeim málaflokki frekar en að þurfa að bregðast við með sífelldum plástrum og öðru eins. Frumvarp um þetta væri auðvitað liður í að setja skýran ramma á sem flestum sviðum löggjafarinnar um það hvert við viljum sjá samfélagið þróast í þessu sambandi en það breytir því ekki að lykillinn er auðvitað að dvalarleyfiskerfi, verndarkerfi og öll kerfi sem eru grunnurinn að útlendingaumgjörð okkar Íslendinga, þjóni markmiðum okkar en ekki að við þurfum að nota svona atriði til að móta útlendingastefnu heldur er þetta miklu frekar bara til þess að styrkja heildarnálgunina.

Sá siður í öðrum trúarbrögðum að hylja andlit með þessum hætti hefur merkingu fyrir þá sem aðhyllast þessi trúarbrögð og hún er æðiólík eftir því hver á í hlut, eftir því hvern maður spyr, frá ólíkum löndum, frá ólíkum undirgreinum múhameðstrúarbragðanna. Ég sest ekki í dómarasæti yfir því hvernig fólk iðkar sína trú í sínum heimalöndum. Ég tel mig í flestum tilvikum alls ekki hafa forsendur til þess að leggja sérstakt mat á það frá mínum bæjardyrum séð, hvernig mín menning hefur mótað mín gildi, að ég sé þar með fær um að skera úr um það hvert ágæti hinna ýmsu trúar- og menningarsiða í öðrum löndum er. Ég tel að löndum, þjóðríkjum, samfélögum og þjóðum sé bara frjálst að hátta sinni menningu eins og þau vilja, auðvitað upp að vissum mörkum. Auðvitað getur maður sannarlega haft ákveðna skoðun eða ákveðna tilfinningu fyrir því hvað manni finnst um þessi atriði en ég tel ekki að hlutverk Íslands í gangverki alþjóðasamfélagsins sé að breyta hinu eða þessu út frá okkar gildismati þegar einhverjar þjóðir hafa háttað sínum samfélögum bara eins og þær hafa gert alla tíð.

Á sama hátt er vísað til margvíslegra gilda þegar innflytjendaumræðan á Íslandi fer að snúast um að hér séu við lýði ákveðin grunngildi sem eru sögð vestræn grunngildi. Þá er stundum talað um innflytjendamál á þeim grunni að það sé í raun og veru öllum algerlega frjálst að koma hingað svo lengi sem menn aðlaga sig einhverjum gildum sem við Íslendingar eigum að aðhyllast. Mér finnst þessi umræða líka oft svolítið ófullkomin. Ég held að gildi okkar Íslendinga séu mjög breytileg eftir tímum rétt eins og gildin breytast í öðrum samfélögum. Við erum náttúrlega — það má á einhvern hátt líta á okkur sem fjölskyldu eða eitthvað slíkt. Við erum ákveðin fjölskylda hér. Við breytum um skoðun frá ári til árs og gildi okkar eru ekkert endilega þau sömu núna árið 2026 og þau voru árið 2016 eða 2006. Við sjáum mjög miklar breytingar í ýmissi umræðu þannig að það er erfitt að slá því föstu að það séu alltaf sömu gildi að verki. Ef við ætlum að flokka það hverjir mega koma eftir því hvort þeir aðhyllast okkar gildi þá held ég að við lendum fljótlega í ógöngum.

Þar fyrir utan held ég að ég sé ekki heldur þess umkominn að gera kröfu á fólk, t.d. þegar við tölum um aðlögun innflytjenda, um að menn afsali sér sinni menningu, sinni trú eða sínu tungumáli og verði að einhverju allt öðru en þeir eru og hafa mótast í sínu samfélagi. Aðlögun innflytjenda, einhver full aðlögun eins og einhver sér fyrir sér í einhverju fyrirmyndarríki, er að mörgu leyti ekkert sérlega mannúðleg krafa gagnvart þeim sem hingað koma. Öllu heldur er mín sýn sú að þjóðirnar eigi bara að halda áfram að vera fjölbreyttar sín á milli, þ.e. við Íslendingar erum bara eins og við erum og höfum alltaf verið og við erum örugglega breytileg frá einum tíma til annars — en að það séu einhver svona gildi sem hér eru, ég velti því fyrir mér. Kannski er maður kominn aðeins út fyrir efnið en þetta eru svona nokkrir þankar sem vakna hér. Það eru ýmsar draumsýnir og óraunhæfar væntingar sem fólk hefur á þessu sviði þegar staðreyndin er sú að grunnkrafan eða grunnstefnan í þessum málaflokki er auðvitað að t.d. að fólk í fátækari ríkjum heims þurfi ekki að lenda á hrakhólum og flýja til annarra landa heldur geti byggt upp sín samfélög með sínum þjóðum eins vel og hægt er. Það á að vera keppikeflið en ekki að gera sífelldar ráðstafanir til að bregðast við — þannig að maður noti aftur orðið óyndisúrræði — því óyndisúrræði sem margir, t.d. í suðrænni löndum heims og víða um heim í fjarlægum löndum, hafa þurft að grípa til á undanförnum árum sem er að flýja heimalönd sín til þess að t.d. koma til Íslands. Ég er ekki viss um að það sé endilega óskastaða fyrir alla þótt ég viti að í núverandi ástandi séu sannarlega margir sem vilja komast hér að.

Það eru margar klisjur sem stundum einkenna þessa umræðu og óraunhæfar væntingar fólks um að hér sé hægt að byggja upp einhvers konar áframhaldandi fyrirmyndarsamfélag okkar Íslendinga en það eru bara þessi óljósu gildi okkar sem eru höfð í hávegum. Ég held að það sé ekkert endilega raunhæft. Ég held að hugsunin eigi frekar að vera sú að við takmörkum frekar aðflutning í sem flestum skilningi. Þannig er víst að hvaða gildi sem þetta svo sem eru munu halda áfram óáreitt hérna í okkar samfélagi, þannig að við gerum ekki stundum þessar óraunhæfu kröfur til fólks frá fjarlægum menningarheimum, að það einhvern veginn afsali sér öllu sem þess er og um það snýst þetta þingmál ekki, þótt maður hafi aðeins farið út fyrir efnið í sinni umfjöllun hér og gefist því miður ekki meiri tími til þess að fjalla um málið.

Að öðru leyti hvet ég viðeigandi nefnd, sem væri allsherjar- og menntamálanefnd, til að taka þetta til málefnalegrar umfjöllunar og frekari vinnu. Þar mun maður leggja sitt af mörkum. Þetta er flókið mál og hefur marga anga, eins og maður reyndi að komast aðeins yfir í sinni ræðu. Það vekur stórar spurningar um stóra málaflokka.