Málefni Landsvirkjunar, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegur forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að bregðast svo skjótt við beiðni forseta Alþingis í gær að kröfu okkar þingmanna í stjórnarandstöðunni um að koma hingað og svara nokkrum spurningum varðandi samskipti ráðherra við stjórn og framkvæmdastjóra Landsvirkjunar. En ég vil taka undir orð hv. þm. Ólafs Adolfssonar hér á undan mér og beina því til virðulegs forseta að hlusta nú eftir því með okkur þingmönnum og gera athugasemdir við það ef hæstv. ráðherra kemur sér undan því að svara þeim spurningum eins og hann á stundum til hér, a.m.k. í óundirbúnum fyrirspurnum. Það er brýnt að hæstv. fjármálaráðherra taki þessa umræðu alvarlega að því leyti að mönnum þykir það mikilvægt og mönnum er annt um það að fá svör við mikilvægum spurningum sem lúta að þessu máli.