Málefni Landsvirkjunar, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna en hún olli gríðarlegum vonbrigðum. Ég ætla að gefa hæstv. ráðherra tækifæri á því að útskýra það af hverju hæstv. ráðherra fór ekki eftir 50. gr. þingskapalaga. Þar segir að ráðherra skuli, með leyfi forseta, „leggja fram þær upplýsingar sem hann hefur aðgang að og hafa verulega þýðingu fyrir mat þingsins á málinu.“
Hæstv. ráðherra heldur sig við það sem hann sagði 19. október um að þetta væru almennar stjórnunaráherslur, það væri engu við það að bæta og hér væri sagan öll. Hver einasti landsmaður er búinn að sjá þetta var ekki sagan öll og hæstv. ráðherra er búinn að staðfesta það að hann vissi af bréfi forstjóra Landsvirkjunar sem er búinn að vera forstjóri í 17 ár. Hvað segir forstjórinn í bréfinu? Hann segist hafa áhyggjur af því að pólitísk afskipti séu svo mikil að fyrirtækið gæti orðið óstarfhæft í framhaldinu. Hann segir að ráðherra hafi fundað með stjórn um málefni Landsvirkjunar þar sem forstjóri fær ekki fundarboð og að hæstv. ráðherra hafi haft frumkvæði að því.
Virðulegi forseti. Ég spyr því aftur, eins og ég spurði á sínum tíma þann 19. október en nú er 4. nóvember: Af hverju sagði hæstv. ráðherra ekki frá því sem hann vissi þegar hann var spurður út í starfslok forstjóra og fylgdi þar með lögum um þingsköp?