158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

Málefni Landsvirkjunar, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.

[16:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir spurninguna. Varðandi fundargerðir Landsvirkjunar sjálfrar þá er það raunverulega þannig að ríkið hefur aldrei óskað eftir fundargerðum ríkisfyrirtækja þannig að ég get ekki lofað fyrir fram að sá vegur verði auðveldur, en því verður sýndur skilningur að reyna að verða við því ef það er mögulegt.

Varðandi skilning á 6. gr. þá er það þannig að þrátt fyrir ákvæði 6. gr. þá hefur forstjóri Landsvirkjunar alltaf vikið af fundi Landsvirkjunar þegar málefni hans eru til umræðu í stjórninni. (Gripið fram í.) Þessir fundir sneru þá allir að málefnum sem tengdust honum.

Varðandi pólitísku afskiptin. Ég hef átt mjög gott samtal við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar einmitt um þennan punkt. Þetta snýst raunverulega um að það sé hafið yfir allan vafa gagnvart sérstaklega ESA að afskipti ríkisins af stjórnun og ákvarðanatöku innan Landsvirkjunar séu engin, að við skerum þarna á milli. Og einmitt þess vegna hefur verið svona stíf krafa um að þeir fundir sem eru haldnir séu allir með dagskrá og fundargerð, það komi skýrt fram hvað er verið að ræða. Og auðvitað er að verulegu leyti verið að koma til móts við ESA einfaldlega með því að fara yfir í það að láta valnefndir velja í stjórnir. Þannig að ég deili áhyggjum af því að það skiptir einmitt miklu máli að það sé traust um að það séu engin pólitísk afskipti og ekki síst þess vegna fagna ég mjög þeim hugmyndum að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði málið sérstaklega.