Málefni Landsvirkjunar, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að segja í upphafi máls míns að ég hef áhyggjur af því hversu léttvægt hæstv. ráðherra tekur þessari umræðu og þeim ávirðingum sem hér eru á bornar. Þetta getur ekki flokkast undir mismunandi upplifun eins og menn hafa reynt hjá þessari ríkisstjórn að fela sig á bak við. Þetta eru alvarlegri hlutir en svo. Ég verð að viðurkenna að á síðustu dögum hafa hlutir komið upp í hugann í tengslum við þetta mál eins og þöggun, afvegaleiðing umræðu og pólitísk afskipti. Maður getur líka velt fyrir sér: Hvert er tilefnið fyrir öllu þessu havaríi, öllum þessum fundum stjórnar Landsvirkjunar í ráðuneytinu með eða án ráðherrans? Og enn og aftur, ráðherrann og ráðuneytið eru eitt og hið sama. Mér finnst ráðherrann taka því dálítið léttvægt. Er verið að undirbúa jarðveginn fyrir eitthvað annað, til að mynda sölu á Landsvirkjun eða hlut í henni til að sækja peninga til að stoppa upp í gatið, stóra núllið? Hvert er tilefnið?
Ég var þó ánægður að heyra að hæstv. ráðherra deildi áhyggjum fyrrverandi forstjóra af því að það yrði að forðast pólitísk afskipti. Hann deilir áhyggjunum en hann telur þessar áhyggjur hins vegar ekki réttmætar hjá fyrrum forstjóra. Við erum hér að spyrja af hverju ráðherrann sagði okkur ekki satt 19. október. Miðað við þau gögn sem hafa hér komið fram vissi hann miklu betur. Þá er rétt að vísa til ábyrgðar ráðherra, honum ber að segja satt og rétt frá og segja allan sannleikann. Það er líka rétt að minna á upplýsingaskyldu samkvæmt þingsköpum og líka rétt að minna á siðareglur ráðherra. Allt þetta kallar á að ráðherra sem stendur í þessari pontu og svarar spurningum segi satt og rétt frá öllum upplýsingum.
Hér er öll sagan sögð, sagði hæstv. ráðherra, en núna er komið fram efni í heila bók. 2. október sagði ráðherra um ágreininginn í fjölmiðlum: „svo sannarlega ekkert sem snýr að fjármálaráðuneytinu,“ talandi um sannsögli, með tilvísun í orð fyrrum forstjóra.
Mér finnst málið í heild sinni sýna bersýnilega að pólitísk afskipti hafi aukist eftir að gerð var breyting á skipun stjórnarmanna í ríkisfyrirtækjum þar sem ráðherra skipar alla stjórnarmenn.
Maður getur líka spurt sig: Til hvers þarf níu fundi ef þeir snúa eingöngu að góðum stjórnarháttum en ekki arðgreiðslum eða einhverjum fjárhagslegum samskiptum eða hugsanlega undirbúningi að einhverjum jarðvegi fyrir sölu Landsvirkjunar eða eitthvað slíkt? Og hér vil ég minna á stefnu Framsóknar um að Landsvirkjun skuli vera í þjóðareign og aldrei seld.
Það er ljóst að ráðherra hefur ekki upplýst þingið á þann hátt sem honum ber samkvæmt þingsköpum og siðareglum ráðherra. Ráðherra virðist segja aðeins hálfa söguna, vitandi að fyrir lágu upplýsingar, m.a. frá forstjóra og væntanlega líka stjórn Landsvirkjunar, sem gefa allt aðra mynd.
Hæstv. ráðherra sagði að fyrirkomulagið væri arfur frá fyrri ríkisstjórn. Hér var laumað inn, þegar Bankasýslunni var slaufað, viðbótargrein á tíma þegar starfsstjórn starfaði og kosningabaráttan stóð yfir en þar átti að setja fram starfsreglur um hvernig þetta yrði gert og ráðherranum hefði verið í lófa lagið að viðhalda því að fá tilnefningar frá þinginu og láta valnefnd síðan fjalla um þau skilyrði. En ráðherrann ákvað að gera það ekki. Hin nýja ríkisstjórn — og ég gagnrýndi það harðlega og tók hér umræðu, bæði við hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra hér á fyrstu mánuðum þeirra í ríkisstjórn, um að þetta væri ekki góð vegferð þar sem ráðherrann tæki allt valdið til sín, sem hann og gerði. Hann hefði getað haldið áfram með einhverju öðru fyrirkomulagi.
Og hverjir eru nú þessir stjórnarhættir sem þurfti að fjalla svona mikið um? Hvernig voru hinir góðu stjórnarhættir þegar skipan stjórnarinnar var með öðrum hætti? Jú, þá var gefin út ársáætlun um fundi stjórnarinnar. Í þeim áætlunum kom fram að einn fundur yrði bara stjórnin án forstjóra þar sem rædd yrðu einmitt samskipti innan stjórnar og hvernig stjórnin gæti náð betri tökum á sínum verkefnum o.s.frv., fullkomlega eðlilegt, opinskátt, gegnsætt. Ekki laumufundir, ekki „allt í einu“-fundir þar sem forstjóranum var ekki boðið á fundina heldur fyrirframákveðið. Allir hinir fundirnir voru með forstjóra, fyrirframákveðið, opinbert, góðir stjórnarhættir, ekki satt? Og hvernig var fyrirkomulagið við samskipti við ráðuneytið? Að jafnaði einn, eftir atvikum tveir fundir með forstjóra og stjórnarformanni, ekki með stjórninni, enda skipaði ráðherrann ekki alla stjórnarmennina. Hann skipaði jú stjórnarmenn en þetta voru ekki allt hans tilnefningar, þetta var ekki hans fólk. Þetta var bara fólk sem hafði það verkefni sem er skrifað í lög um Landsvirkjun og ríkisstofnanir, að starfa sjálfstætt og bera ábyrgð á hagsmunum, og bara hagsmunum fyrirtækisins. Stjórnarformaðurinn og forstjórinn fóru síðan á fund stjórnar og upplýstu um fundinn með ráðherranum. Þetta eru góðir stjórnarhættir.
Hvernig er þetta í dag? Níu fundir haldnir í ráðuneytinu, ýmist með ráðherranum eða ekki, og vel að merkja, ráðuneytið og ráðherrann er eitt það sama. Níu fundir án forstjórans, sumir fundirnir hádegisverðarfundir þar sem forstjóranum var ekki boðið að vera með. Eru þetta góðir stjórnarhættir? Það er kannski ekki furða að það hafi þurft marga fundi ef menn ætluðu að vinda ofan af þessu. En mér heyrðist ráðherrann hérna segja áðan í andsvörum að hann ætlaði ekki að vinda ofan af þessu, þetta væri hið góða kerfi. Ég segi ég bara: Guð hjálpi okkur, fyrir nýjan forstjóra sem er þá að fara í ráðningarferli núna, og hvernig er hægt að treysta núverandi stjórn til að ráða nýjan forstjóra þegar þessi umræða og þessar aðstæður eru uppi í samfélaginu? Hefði nú ekki verið gott, ef maður lítur um öxl, að hafa þann forstjóra sem var hér í 17 ár og fór í gegnum alla samningana þegar við stöndum frammi fyrir því að fara í samninga við Alcoa Fjarðaál, stærsta samninginn, með alla þá reynslu og þekkingu sem hann hafði af þeim málum öllum og kjark í að standa gegn alls konar hlutum, m.a. héðan úr þingsal og frá ýmsum aðilum úr samfélaginu á liðnum árum þegar var verið að gera hér samninga við aðra aðila? Hefði ekki verið gott að hafa traustan forstjóra með reynslu og traust stjórnar til forstjórans í slíku verkefni? Nú erum við að fara væntanlega af stað inn í slíkt verkefni án alls þessa.
Ég held að hér í lokin á þessari umræðu verðum við að kalla hér eftir því — þegar ráðherra segir að það verði hér áframhaldandi staðfesta og traust í störfum Landsvirkjunar þá kallar það augljóslega á einhverjar breytingar á því ferli sem er í gangi. Augljóslega þarf stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að fara í gegnum þetta mál og fá öll gögn á borðið. En ráðherra þarf að koma í þennan ræðustól og útskýra fyrir okkur af hverju hann sagði ekki allan sannleikann 19. október með þær upplýsingar sem við vitum í dag að hann hafði, því það er annars ósannsögli, það er annars afvegaleiðing, það er annars þöggun og það eru annars meint pólitísk afskipti. Það blasir við.
Hér er öll sagan sögð, sagði ráðherrann. Okkur er öllum ljóst að svo er ekki. Það er mikið eftir að segja í þessu máli, því miður, því traust til Landsvirkjunar er svo mikilvægt. Þetta er svo mikilvægt fyrirtæki. Það sást í ágætri grein sem var skrifuð í Morgunblaðið í dag af fyrrum stjórnarformanni, Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni, sem var einmitt stjórnmálamaður einu sinni en starfaði sem stjórnarformaður Landsvirkjunar á miklum uppbyggingartíma og gekk vel. Þetta gekk nefnilega vel í 40 ár. Af hverju þurfti að breyta? Til að lenda í þessari stöðu sem við erum komin í í dag, í annars vegar umræðu um traust á stjórn Landsvirkjunar og hins vegar traust okkar hérna í þinginu til ráðherrans, um hvort hann segi okkur satt, sem við sjáum því miður að er ekki.
Ég bið hæstv. ráðherra um að koma hérna upp í sínum lokaorðum og útskýra fyrir okkur af hverju hann gat ekki upplýst okkur um öll þau gögn með einum eða öðrum hætti þann 19. október um að það lægi miklu meira undir en einhver ágreiningur um stjórnarhætti milli forstjórans og stjórnarformannsins, því að það er svo augljóst að svo er.