158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

svör ráðherra um munnlega skýrslu.

[17:53]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Hér komu allir formenn hv. stjórnarandstöðu upp í umræðunni áður en hún hófst og höfðu áhyggjur af því að við fengjum ekki efnisleg svör. Gott að hæstv. ráðherra mætti til þings. Eftir stendur að við erum engu nær um þær spurningar sem lagðar voru fyrir hæstv. ráðherra. Stóra spurningin er þessi: Af hverju fór hæstv. ráðherra ekki að þingskapalögum og upplýsti okkur 19. október um hluti sem hann vissi þá og við erum enn að ræða núna og reyna að átta okkur á? Hann er búinn að staðfesta að hann vissi þetta áður en umræðan hófst. Hann vissi þetta. Við vitum það sem lesum lög um þingsköp að skv. 50. gr., og auðvitað vitum við að þannig á það að vera, átti hann að upplýsa okkur um það en gerði það ekki. Það eru engin svör um það eða svör við öðrum þeim spurningum sem hv. þingmenn komu fram með. Þessu máli er ekki lokið, virðulegur forseti.