158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

svör ráðherra um munnlega skýrslu.

[17:56]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég verð að taka undir það sem komið hefur fram hjá hv. þingmönnum á undan mér að það kemur á óvart að ýmsum spurningum, skýrum, einföldum, ítrekuðum, hafi ekki verið svarað í þessari umræðu. Næg voru tækifæri hæstv. ráðherra, fyrst í andsvörum og síðan í fimm mínútna ræðu hans sem er auðvitað hugsuð til þess að bregðast við því sem fram kemur í umræðunni, spurningum og athugasemdum og þar fram eftir götunum. Það voru ítrekaðar margoft fyrirspurnir eins og sú sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir nefndi hér, fyrirspurnir sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kom inn á strax í upphafi umræðunnar, fyrirspurnir sem ég kom inn á, fyrirspurnir sem ég held að sé óhætt að segja að allir sem hér tóku til máls hafi haft. Ég man eftir andsvari hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar þar sem margt féll nú milli skips og bryggju (Forseti hringir.) í þeim spurningum sem þar voru settar fram. Ég nefni þetta sérstaklega í ljósi þess og í ljósi sögunnar að brýnt var fyrir hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) og forseta að hafa þetta í huga í gegnum þessa umræðu. Svarhlutfallið var í mjög svipuðum takti og það sem við kynnumst hér dagana langa í óundirbúnum fyrirspurnatíma.