158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.

258. mál
[18:34]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sitt seinna andsvar. Staðbundið merkir í sjálfu sér heimild til veiða á ökrum og túnum. Það er ekki bundið landshlutum hvað þetta varðar heldur er þetta fyrst og fremst staðbundin heimild til veiða innan viss tíma, eins og kemur fram í þingsályktunartillögunni, og þá er þetta fyrst og fremst heimild sem veitt er bændum til að verja sín akurlönd og tún á þessum tíma. Út á það gengur það en ekki svo sem hvar menn búa, í hvaða póstnúmeri fuglinn lendir eða hvað. Þetta snýst ekki um það. Fyrst og fremst snýr þetta að því að menn fái þessa heimild. En ég ítreka í lokin, frú forseti, í þessu seinna andsvari, mikilvægi þess að farið verði í þessa stjórnunar- og verndaráætlun og stofnstærð verði áætluð. Hvað teljum við að sé æskilegt að séu margir fuglar hér á þessu ágæta landi?