158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.

258. mál
[18:35]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil ítreka þakkir mínar til hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar fyrir að mæla hér fyrir þessu máli. Þetta er mikilvægt mál og ég er þakklátur fyrir að fá að vera meðflutningsmaður í þetta skiptið þar sem mér hafði yfirsést tölvupóstur á síðasta þingi þegar hv. þingmaður hvatti til meðflutnings.

Þetta eru auðvitað — og við sem höfum verið þingmenn landsbyggðarkjördæma, þó að ég mæti hér sem fulltrúi bænda í Suðvesturkjördæmi, eins og ég kom inn á áðan, og svo sem bara almennings núorðið því gæsir eru farnar að þvælast fyrir manni á flestum götuljósum nú um stundir en látum það nú liggja á milli hluta. Það er ekki verið að leggja til að stofninn verði grisjaður hér innan höfuðborgarsvæðisins með sérstakri aðgerð. Það er kannski í næstu framlagningu en sjáum til með það.

Við sem höfum verið þingmenn í landsbyggðarkjördæmum þekkjum auðvitað þessa umræðu. Hún kemur upp á meira og minna öllum fundum er varða svæði þar sem landbúnaður er stundaður og hefur gert um langa hríð og ágerist bara. Þær tölur sem hér eru dregnar fram varðandi þróun þessara stofna sem hér eru ræddir, sem er álftin, grágæs, heiðagæs og helsingi, hefur auðvitað verið með þeim hætti að vandamálið verður stærra og umfangsmeira eftir því sem árin líða og einhvern veginn hljóta menn að spyrja sig núna: Af hverju spyrntu menn ekki við fótum fyrir nokkru síðan? Þetta gat eiginlega ekki endað öðruvísi en með því stórtjóni sem við blasir núna, bara þegar horft er til þess hversu mikið af þurrefni hver fugl þarf að éta til að viðhalda sér og vaxa þá er þetta auðvitað gríðarleg sókn í ræktarland og auðvitað er það hvað girnilegast þar sem bændur hafa staðið í ýmiss konar kornrækt og annarri ræktun landsins.

Það kemur mér um leið svolítið á óvart að ráðherrar, og þá er ég ekki bara að tala um núverandi hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra — að það hafi ekki verið stigið inn í þetta á fyrri stigum í einhverju samstarfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra og þeirra ráðherra sem fóru með málefni landbúnaðarins á fyrri stigum, matvælaráðherra þar á undan á síðasta kjörtímabili og landbúnaðarráðherra á fyrri stigum. Manni finnst þetta svo augljóst í raun en það er eins og stundum vill verða hér á hinu háa Alþingi að það sem maður telur einfalt og augljóst og ætti í rauninni að nægja að segja upphátt til að menn sjái hið augljósa, það tekur oft langan tíma. Ég bara vona að með þessu máli sé búið að leggja ákveðna línu.

Til að hvetja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til dáða vil ég segja að hann hefur ekki mikinn tíma til að koma þessu máli í kring og í mark vegna þess að þegar kosið verður næst og nýir ráðherrar taka við þá verður þetta bara lagað og gert. Ég held að þetta sé eitt af þeim málum að þegar menn horfa á þetta skynsemisaugum taki ekki langan tíma að laga þetta. Þannig að ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að taka efnisatriði þessa góða máls, sem Þórarinn Ingi Pétursson er fyrsti flutningsmaður að, með hópi þingmanna úr Framsóknarflokki, Miðflokki og Sjálfstæðisflokki, taka þetta mál til sín og koma þessu í gegn. Það kæmi mér á óvart ef mikil viðspyrna fyndist hér í þinginu hvað þetta varðar. En að öðrum kosti verði þetta gert og lagfært korteri eftir kosningar, þær næstu, hvenær sem þær koma nú til en í síðasta lagi haustið 2028.

Þetta er nefnilega tilfinnanlegt tjón. Þetta er ekki svona tilfallandi, assgoti fóru nú margar niður í akurinn hjá mér í fyrrakvöld, þetta er stöðugt áreiti og stöðugt tjón og það er nú þannig að bændur landsins eru svona gegnumgangandi ekki ofaldir. Þeir mega ekki með góðu móti við búsifjum sem þessum. Við hér á Alþingi eigum að sýna því skilning að þarna sé náttúran svona kannski að einhverju marki að taka fram úr sjálfri sér. Þessi vöxtur og viðgangur er auðvitað, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson kom inn á hérna áðan, tilkominn vegna þess að aðgengi að fæði og annað slíkt, og friðunin auðvitað í tilfelli álftarinnar, er auðvitað að skapa svona fjölgunarskilyrði sem má segja að séu ekki náttúruleg, leyfi ég mér að fullyrða. Nú er ég ekki sérfræðingur í þessum málum en mér finnst bara augljóst, og ég treysti mér til að fullyrða, að fjölgunin sé miklu meiri en náttúruleg fjölgun ef engar hliðaraðgerðir og -áhrif væru að koma fram sem eru í þessu tilviki þetta mikla aðgengi að fæðu sem bændur eru að bera á borð þessara stofna. Þannig að þegar lagt er mat á þetta má ekki líta á þetta sem einhvern eðlilegan takt í þróun þessara stofna af því hann er það ekki. Svona er þetta af því að þarna liggja þessir stofnar uppi á bændum og ökrum þeirra og éta sér til óbóta, eins og ég stundum.

Þetta mál fer nú væntanlega inn í umhverfis- og samgöngunefnd. Er það ekki? Hv. fyrsti flutningsmaður nikkar við því. Ég held að það væri skynsamlegt í vinnu nefndarinnar núna — ég verð að viðurkenna að mér gafst ekki tími til að glöggva mig á umsögnum sem komu inn síðast — ég vil alla vega hvetja til þess að markmið nefndarinnar, markmið umhverfis- og samgöngunefndar við vinnslu málsins, verði að koma því á þann stað að það sé hægt að klára það til enda. Það er þá ekki stór ákvörðun sem er eftir en gestakomur og nefndarálit og þar fram eftir götunum, að það verði bara unnið, málið tekið út þegar hentar, og þá sé raunverulega hægt að keyra á það að klára, því að ég held, eins og ég segi, að það sé mjög hófleg raunveruleg andstaða við efnisatriði málsins. Þeir sem þekkja eitthvað til stöðu þessara mála úti á landi vita að hér verður að grípa inn í og það hefði í raun átt að gerast fyrir löngu síðan ef bærilega ætti að vera. Þó að tölurnar séu hér sex ára gamlar, sem stofnstærðir greinargerðarinnar miðað við, held ég að það blasi við, bara út frá svona sjónrænu skynsemismati, að stofnarnir séu enn stærri í dag en þeir voru orðnir á þeim tímapunkti. Það er ekki náttúruleg fjölgun og við eigum að nálgast það þannig og veita bændum vopn, í þeim skilningi að mega verjast þessari ásókn þessara fuglategunda.

Það verður yfirdrifið nóg af helsingja, heiðagæs, grágæs og álft þó að spyrnt verði við fótum og sumir þessara fugla eru prýðismatfuglar þannig að þetta verður lyftistöng fyrir villibráðarkvöld og frystikistur landið um kring ef vel tekst til. Ég held að það sé í öllu falli þannig — og ég ítreka og hvet til þess að hv. umhverfis- og samgöngunefnd vinni þetta mál, hleypi því til umræðu í nefndinni þannig að menn séu í færum til að klára það þegar líður að vori. Það væri óskastaðan mín gagnvart þessu máli því að það er ekki bara gott, skynsamlega og hóflega fram sett heldur er það nauðsynlegt fyrir hagsmuni bænda landsins og nauðsyn þess að gripið verði inn í eykst ár frá ári. Við finnum það hér á höfuðborgarsvæðinu hversu mikið fuglum hefur fjölgað sem eru í hægfara göngutúr um götur borgarinnar en það er ekkert í samanburði við það sem gerist úti á landi og þann mikla fjölda fugla sem þar leggjast á þessi verðmæti sem bændur hafa lagt svo mikið á sig til að búa til. Ég læt þetta duga í bili.