158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.

258. mál
[18:45]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og þetta áhugaverða mál. Ég hef almennt verið þeirrar skoðunar að það eigi að halda friðun á álftinni en þegar maður heyrir þetta ár eftir ár hér, þá ætla ég eiginlega bara að gangast við því að maður skilur betur það sem liggur hér að baki. Ég vil meina að þessi tillaga sé bara orðin nokkuð vönduð og taki á mörgum málum. Það eina sem maður horfir til er að fá þá nýrri tölur um þessar stofnstærðir og sjái þá í raun umfangið á þessu. Af því að ég hef almennt séð verið veiðimannsmegin í lífinu spyr ég mig hvort við myndum kannski ekki vilja reyna að nýta það tækifæri að grisja úr þessum stofni eins mikið og við mögulega getum þegar fuglarnir henta best til nýtingar. Ég veit að álftin verður nú ekki notuð, hún er náttúrlega risastór og seigur fugl, en ungarnir gætu klárlega nýst og ég er alveg sannfærður um, eins og með gæsir o.s.frv., að þar er örugglega verk að vinna. En bara svona til upplýsingar: Hvenær sjá menn þá fyrir sér að hægt væri að byrja að nýta t.d. gæsirnar? Mæta þær á kornakrana þegar þær eru að koma í millilandafluginu sínu, eru þær horaðar þegar þær mæta á akrana eða eru þær bara feitar og pattaralegar? Er hægt að nýta þær allan þennan tíma sem gefinn er upp?