leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.
Frú forseti. Ég þakka fyrir svarið hjá hv. þingmanni og fullvissa hann um að við þurfum kannski ekki að friða Sjálfstæðisflokkinn. En mér fannst áhugavert þetta með að fugl henti kannski ekki til nýtingar þegar hann kemur grindhoraður og vill komast á hlaðborðið hjá bændum. Nú er það þannig að ég er alinn upp á Snæfellsnesi og þar voru engir kornakrar og ekki mikið láglendi, heilt yfir sá maður nú kannski ekki mikið en þó aðeins af gæs. Ég merkti aldrei að álftir væru til sérstakra vandræða. En maður tók auðvitað eftir því að álftir voru mjög oft í svona skjólsælum fjörðum þar sem virtist eins og þær væru að éta einhvern sjávargróður og safnast í skjólsæla firði sem bera nú kannski bara nafn með rentu, Álftafjörð o.s.frv., maður getur sér til um það.
En mig langar alveg í restina að velta því upp hvort það þurfi endilega að búa þannig um hnútana að það þurfi að skjóta þessar fuglategundir eða hvort það væri tækifæri til að vera með einhvers konar aðrar varnir til að verja kornakra. Nú veit ég að menn hafa verið að reyna gasbyssur o.s.frv. en mjög takmarkaður árangur af því, eins og ég skil það. Þetta eru skynsamir fuglar. Varðandi álftina þá sáum við á Snæfellsnesi ekki mikið af álft sem var til einhverra vandræða, það var helst að þær væru til vandræða þegar þær voru með unga, þá verða þær mjög ákafar í að vernda þá (Forseti hringir.) og geta verið til vandræða bæði fyrir menn og skepnur. Það væri auðvitað ein leið til að fækka, að það sé beinlínis verið að draga úr hættu.