158. löggjafarþing — 26. fundur, 4. nóv. 2026.
leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.
258. mál
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni andsvarið. Hann talar um hvort það verði ekki að fara fram mat á stofninum og uppfæra þessi gögn, og vissulega þarf að uppfæra gögnin, en ég held að við getum alveg unnið hvoru tveggja samhliða, yfirfarið gögnin og talið fuglana á meðan við undirbúum lagafrumvarpið. Ég held að hér sé ekki eftir neinu að bíða og við eigum að hefjast handa við áframhaldandi vinnu við þetta góða mál.