158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.

258. mál
[19:09]
Horfa

Jóhanna Ösp Einarsdóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Varðandi það hvort við þyrftum að telja fugla á hverju ári og fylgjast með hversu margir fuglar eru í stofninum þá tel ég að það sé kannski ekki endilega nauðsynlegt að telja fugla á hverju ári heldur ættum við kannski frekar að horfa á þetta eins og þegar við förgum vargi eins og refum, að telja hversu margir fuglar eru aflífaðir og fylgjast með þróun þeirra mála í gegnum það. Í refaveiðunum eru veiðimenn að skila skottum af refum þannig að hægt væri að skrifa einhvers konar skýrslu um hvernig þú aflífar fuglana og taka mið af því.