158. löggjafarþing — 26. fundur,  4. nóv. 2026.

leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.

258. mál
[19:10]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir alveg ljómandi ræðu. Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá hv. þingmann inn í þessa umræðu. Nú er hún varaþingmaður hér tímabundið en það er gott að fá mikinn og öflugan liðsstyrk frá hendi Samfylkingarinnar sérstaklega inn í þessa umræðu. Ráðherra málaflokksins kemur einu sinni úr sama flokki, hæstv. umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson. Mig langar því að koma með hvatningu og/eða beiðni til hv. þingmanns — og ég veit að það er hér önnur flokkssystir á mælendaskrá — til Samfylkingarinnar um að standa með þessu máli. Ég veit að hv. þingmaður er stödd á sama stað og ég hvað þetta varðar. Mig langaði bara að koma hér upp, frú forseti, með þessa hvatningu til hv. þingmanns og sérstaklega í ljósi þekkingar hennar á málinu.

Mig langar hér í lokin að koma með spurningu sem snýr að því jafnvægi sem við viljum alltaf reyna að halda í náttúrunni. Við þekkjum það mjög vel þegar refastofninn var friðaður í nágrenni hv. þingmanns, hvaða afleiðingar það hafði á fuglastofna og svoleiðis. Eru þetta ekki bara mjög svipuð mál? Nú erum við að tala um að reyna að halda ákveðnu jafnvægi í náttúrunni.