158. löggjafarþing — 26. fundur, 4. nóv. 2026.
leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.
258. mál
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni síðara andsvar sitt og ég tek undir hvert orð. Auðvitað kemur þarna inn í veðurfar og annað. Ég tek einnig undir það sem kemur fram í greinargerðinni, að nýta þessa stjórnunar- og verndaráætlun og byggja þetta á gögnum og halda bara áfram. Mér fannst greinargerðin vönduð og þakka honum kærlega fyrir að flytja þessa tillögu.