leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir vandað mál sem hann leggur hér fram, því að það er tilfinningamál fyrir marga þegar talað er um að fara að fækka í svanastofni og fleiri fuglastofnum. En hér er ekki verið að leggja til neinar öfgar eða einhvers konar brjálæði heldur er einmitt verið að finna leiðir til að vernda og standa faglega að þessu máli.
Ég hef verið spennt fyrir að taka þátt í þessari umræðu vegna þess að ég hef fréttir að færa: Hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur þegar samþykkt fjárveitingar til undirbúnings stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir álftastofninn. Markmiðið er að skapa skýran og traustan ramma um hvernig megi draga úr tjóni á ræktarlandi samhliða ábyrgri vernd tegundarinnar. Til að undirbúa þá áætlun verður ráðist í tímabundið tilrauna- og gagnaöflunarverkefni í samstarfi við bændur, sérfræðinga og hagaðila. Til skoðunar er að prófa mismunandi úrræði, svo sem sérstök griðasvæði fyrir álftir, fælingaraðgerðir, skýrar leiðbeiningar um skipulag lands og mögulega afmarkaðar heimildir til fækkunar í stofninum. Með þessu móti verður safnað gögnum um umfang tjóns og árangur mismunandi úrræða. Þannig getum við mótað langtímalausnir sem taka á þessum málum með heildstæðum hætti. Þetta er það sem hæstv. ráðherra er að skoða með Náttúruverndarstofnun því að auðvitað verðum við að bregðast við. Við vitum að tjón bænda hefur verið mikið. Þetta hef ég séð og heyrt í mínu kjördæmi til að mynda. Mér fannst sérlega áhugaverður punkturinn frá hv. þm. Jóhönnu Ösp Einarsdóttur um það hvernig hættir okkar mannanna eru að breyta umhverfi dýranna í kringum okkur, sem veldur svo því að þessi stofn álfta getur fjölgað sér eins og margt bendir til að hafi gerst á síðustu árum.
Þannig að á sama tíma og við viljum efla kornrækt verðum við auðvitað að taka alvarlega á þessum málum og skoða þetta og þetta er í skoðun. Ég fagna hins vegar að við munum fara í þessa vinnu heildstætt í umhverfis- og samgöngunefnd og fá til okkar umsagnaraðila, sem verða örugglega með ýmsa áhugaverða vinkla inn í þessa umræðu. Þannig að ég fagna þessu máli.