leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.
Virðulegi forseti. Mér skilst að aðdragandinn að þessu hafi verið sá að ungir bændur hafi leitað til ráðherra út af þessu máli og hæstv. ráðherra hafi fundað með þeim í kjölfarið og sett af stað þessa vinnu. Það eru nokkrar vikur síðan þetta fór af stað. En auðvitað er þingsályktunartillaga hv. þingmanns ekki að koma hér inn í fyrsta sinn (ÓA: Nei. ) og við vitum að það hefur verið kallað eftir aðgerðum í þó nokkurn tíma þannig að nú er ráðherra einfaldlega að bregðast við því.
Varðandi tímalínuna þá er ég ekki með upplýsingar um slíkt en ég held að ráðherra myndi án efa vilja koma og fræða okkur um þetta eða einhver starfsmaður úr ráðuneytinu í samhengi við umfjöllun nefndarinnar um þetta mál. Við köllum því bara eftir þeim upplýsingum.