viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Mér fyndist nú vel við hæfi að forseti myndi taka vel í lausnamiðaða hugmynd hv. þm. Hildar Sverrisdóttur. Það virðast allir vera sammála um að það sé mikilvægt að hæstv. ráðherrar mæti og svari spurningum. Ef við getum eitthvað aðeins liðkað til, úr því að hæstv. ráðherrar eru fáir — en alveg ágætir og ég hef engar áhyggjur af því að þeir fái ekki spurningar — ef við getum leyst þetta með einhverjum hætti þá held ég að við ættum að gera það af því að ég held að það skipti máli að hv. stjórnarliðar átti sig á alvöru málsins. Hvað ætla menn að ganga langt í þessu? Ætlar þessi ríkisstjórn að ganga þannig fram að hér verði einn ráðherra á bekknum? Er það næsta skref? Allt það sem gert er skapar fordæmi. Við höfum ekki séð þetta áður. (Forseti hringir.) Við erum sömuleiðis komin á skrýtinn stað þegar menn telja ráðherrum það sérstaklega til tekna að koma og svara fyrir mál eins og gert var í gær. (Forseti hringir.) Ég vona að menn hugsi ekki þannig að það sé einhver sérstök góðvild hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra þurfti að svara fyrir það mál (Forseti hringir.) og mun þurfa að svara fyrir það áfram.
Virðulegi forseti. Allt það sem gert er hér skapar fordæmi og þetta er ekki gott fordæmi.
(Forseti (ÞSv): Aftur minnir forseti hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)