Stafræn heilsa.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég lagði fram skriflega fyrirspurn um mat og innleiðingu stafrænna heilbrigðislausna fyrr í haust og bíð svara. En mig langaði að nýta tækifærið núna og spyrja nánar um ákvarðanatökuna. Hvaða viðmið munu ráða því hvaða stafrænu heilbrigðislausnir verða keyptar og innleiddar? Hver ber ábyrgð á að meta þá klíníska ávinninginn og hagkvæmnina? Hvernig verður tryggt að lausnir utanaðkomandi aðila séu metnar á sambærilegum forsendum og lausnir sem eru þróaðar innan opinbera heilbrigðiskerfisins? Verður sameiginlegt mats- og ákvarðanaferli fyrir sjúkrahúsin og heilsugæsluna eða mun hver stofnun taka sjálfstæðar ákvarðanir um innkaup og notkun?