158. löggjafarþing — 27. fundur,  5. nóv. 2026.

Stafræn heilsa.

290. mál
[15:57]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir svarið. Þó að hér verði til ný stofnun er verið að hagræða vegna þess að þessi verkefni hafa áður verið unnin á víð og dreif um heilbrigðiskerfið; hjá embætti landlæknis, hjá Landspítala, hjá heilsugæslu og víðar. Það er verið að ná miklu betur utan um verkefni eins og t.d. að tryggja netöryggi, sem er afskaplega mikilvægt, þannig að hagræðingin felst í samrekstri og betri nýtingu á starfskröftum. Eins og ég nefndi mun heilbrigðisráðuneytið fækka stofnunum eigi að síður. Það er þegar búið að fækka um eina og mun fækka um aðra þannig að samtals mun stofnunum heilbrigðisráðuneytisins fækka um eina. Ég bendi á að undir heilbrigðisráðuneyti eru 11.000 starfsmenn og stofnanir áður en við fórum að fækka þeim 16, sem er mun meiri (Forseti hringir.) fjöldi starfsmanna á hverja stofnun en í öðrum ráðuneytum.