158. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2026.

stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027--2041.

313. mál
[19:25]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Þingmanninum verður svolítið orða vant ef við erum enn þá að ræða hvort þetta sé til að styrkja byggð í landinu. (Innvrh.: Byggðaaðgerð. )Sá sem hér stendur talaði um þetta sem byggðaaðgerð í bæjarstjórn Akureyrar í maí 2016, fer með þetta sem kosningamál í alþingiskosningar 2016 sem nákvæmlega það. Ég hélt þetta væri bara ljóst og það er alveg rosalegt að heyra það frá ráðherranum hér að hann efast um að þetta sé einhver byggðaaðgerð, eða hvað ég sé að hugsa. Ég bara hélt að ég þyrfti ekki að tala með þeim hætti eftir tíu ár á þingi, að vera að ræða Loftbrú í tíu og hálft ár. Auðvitað hafa allir skilning á þessu. Þetta er fullkomin byggðaaðgerð. Við skulum ekkert vera í þessari þvælu. (Gripið fram í.) Mér finnst bara svo rosalegt að heyra þetta frá ráðherranum, svona spurningu, hvort ég teldi þetta vera byggðaaðgerð. (Invvrh.: Nei. … )Þetta er ein helsta byggðaaðgerð sem hefur verið stunduð hér á landi. Það var engar sérstakar vinsældir að fá hér í þinginu þegar maður lagði þetta hérna inn í þingið á sínum tíma og ræddi þessi mál, ef ráðherrann heldur það. (Gripið fram í: Eða styður tillöguna.) En málið er það að 22.000 kr., svo ég komi því líka að, þær segja ekkert um það hvort fjármagnið endist þá út árið eða ekki. Þú ert bara að breyta breytum. Það gæti alveg eins verið að 22.000 kr.-hugmyndin klárist þá bara í ágúst, í september. Það er ekkert um það að segja að markaðurinn taki breytingum af breytunum með þeim hætti að það — haldið þið að það endist nákvæmlega það sama út árið? Það er einhver hugsunarvilla í þessu öllu sem við þurfum að fara í gegnum. Þess vegna segi ég enn einu sinni: Frestum þeim hugmyndum. Höldum okkur við núverandi kerfi næsta ár í gegnum fjárlögin. 800 milljónir fara langt með þetta. Fáum Byggðastofnun, landshlutasamtökin og alla þá aðstoð við málið sem hægt er að ná sér í. Svo gæti ég tekið — það var furðulegt að koma niðurgreiðslu á flugleiðum inn í Loftbrúna eins og ráðherrann var að tala um áðan. Loftbrúin er bara þetta: 600–800 millj. kr. niðurgreiðsla á flugleiðum. Hvort þær höfnuðu á Ísafirði á síðustu árum er annað mál heldur en Loftbrú.