158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

afstaða mennta- og barnamálaráðherra til orða fjármála- og efnahagsráðherra um Landsvirkjun.

[13:46]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurnina. Mér finnst hins vegar algjörlega og fullkomlega óábyrgt ef ég stæði hér og ætlaði að taka undir það sem hv. þingmaður er að alhæfa hér um ósannindi í þrígang frá hæstv. fjármálaráðherra. Hæstv. fjármálaráðherra var í Kastljósi í gærkvöldi og hann hefur ítrekað sagt að hann sé búinn að vera í góðri trú um það sem hann hefur stigið fram með. Ég hef engar forsendur, hv. þingmaður, til að reyna að koma með eitthvað annað hér fram í dagsljósið heldur en raunverulega er að þróast og smám saman er að koma í ljós.

Ég mun ekki gera lítið úr því valdi og þeim verkefnum sem hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur með höndum. Ég treysti því fullkomlega að í lok dags, eða a.m.k. í lokin, þá munum við fá málið algerlega hreint upp á borð þannig að hv. þingmaður geti vel við unað. Að öðru leyti er þetta mál ekki inni á mínu borði og mínar persónulegu skoðanir koma málinu einfaldlega ekki við. Ég virði hins vegar Hörð Arnarson og mér þykir frábært það starf og verk sem þar hefur verið unnið. Ég get líka sagt þér það að mér finnst Landsvirkjun vera eitt af okkar dýrmætustu fyrirtækjum. (Forseti hringir.) Ég segi ekkert annað en að traustið sem er í rauninni í okkar höndum að halda og reyna að byggja upp, við verðum skilyrðislaust að fylgja því eftir. (Forseti hringir.) Að öðru leyti hef ég svarað fullkomlega spurningu hv. þingmanns, (Forseti hringir.) alveg sama hvort hann hefur skilið það eða ekki.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að ræðutíminn í seinni umferð er ein mínúta.)