innleiðing nýs námsmatskvarða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Lágmarkskrafa í mínum huga er að hætta að mismuna börnum sem eru að útskrifast úr 10. bekk eftir búsetu. Lágmarkskrafa að okkar leyti er sú að viðurkenna að það er algerlega glórulaust að ímynda sér það að í einum skóla séu 56% nemenda sem fá A á meðan í öðrum skóla ekki einn einasti nemandi og að við skulum gefa þessum einstaklingum í þessum skóla forgang inn í framhaldsskólann okkar þar sem þeirra fyrsta val verður ofan á á meðan aðrir eru látnir sitja eftir. Við erum að fá mjög jákvæða og mikla hvatningu og þakkir frá kennarasamfélaginu og frá foreldrunum. Nú er kennaraforystan komin með byr í seglin og við erum að fara að sigla saman á þessu skipi og ég vona að hv. þingmaður komi um borð því að við ætlum að snúa við þeirri öfugþróun sem er að eiga sér stað og er búin að eiga sér stað í menntakerfinu um árabil undir forystu þingflokks hv. þingmann, Framsóknarflokksins. Við ætlum að sigla þessu fleyi heil heim og ég ætla að vona að við gerum það öll saman til máls.