158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

stofnun brottfararstöðvar.

[14:06]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hann talar um að taka á rót vandans. Ríkisstjórnin tók auðvitað við ákveðinni stöðu í útlendingamálum. Síðan þá hefur umsóknum um alþjóðlega vernd hér að vísu fækkað um tugi prósenta. Ríkisstjórnin er að ná býsna góðum tökum á þessum málaflokki vegna þess að við höfum unnið eftir skýrri stefnu. Það var algjört stefnuleysi hér í útlendingamálum í, ég myndi vilja segja, áratug eða svo. Fólksfjölgun var um 50.000 manns frá 2017. Þegar hún verður þetta hröð og mikil hefur það áhrif á alla okkar innviði og samfélagsleg viðhorf í garð innflytjenda. Ég lagði fram frumvarp um brottfararstöð og mér finnst kannski ágætt að minnast á það núna, því ég heyri að þingmaðurinn er með böggum hildar yfir því að þetta úrræði sé að frestast, að Miðflokkurinn studdi þetta úrræði ekki og sat hjá í þessari atkvæðagreiðslu, eins og jafnan er í útlendingamálum þegar við erum að taka skref. Ég hef velt því fyrir mér hvað það þýði þegar Miðflokkurinn talar um lokuð landamæri. Eru þau þá lokuð í því samhengi að við getum ekki sent fólk út? Eru þau lokuð í því samhengi vegna þess að þingflokkurinn studdi ekki heldur frumvarp mitt um að senda erlenda sakamenn úr landi eftir afplánun? Við erum búin að senda nokkra tugi slíkra úr landi. Þar sat Miðflokkurinn líka hjá. Hvað er það sem þingflokkur Miðflokksins á við þegar hann segir lokuð landamæri? Er það að loka landamærunum í þessa átt?

Það sem gerðist er að undirbúningur hefur reynst tímafrekari en gert var ráð fyrir. Þess vegna er væntanlegt frumvarp hér inn í þingið um að lengja í gildistökuákvæðinu og bæta úr því sem bæta þarf þangað til úrræðið getur verið tilbúið. Í það eru einhverjir mánuðir, jafnvel ár. Við ætlum að lengja í frestun um heilt ár til að hafa nægan tíma til að geta opnað brottfararstöð. Ég bíð þá eftir því að Miðflokkurinn styðji málið í þetta sinn.