158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.

75. mál
[14:28]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er um að ræða framkvæmdaáætlun um farsæld barna og það er bara alls ekki rétt að ekkert fjármagn fari í þessa áætlun. Hún er fullfjármögnuð. Það eru 700 milljónir til ráðstöfunar í ráðuneytinu til farsældar barna og tengdra verkefna. Þetta eru 16 aðgerðir sem eru fullfjármagnaðar og hér eru þingmenn stjórnarandstöðuflokka, Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins, að leggja til frávísun vegna þess að það tókst. Það má margt gagnrýna við innleiðingu farsældarlaganna og þetta var gagnrýnt í skýrslu ríkisendurskoðanda, m.a. að kostnaðarmat hefði verið ófullnægjandi í tíð síðustu ríkisstjórnar. Það var ófullnægjandi, já, en hér er einmitt þessi hv. ríkisstjórn að leggja til fjármuni í úrræði sem hefur skort, sem hafa verið lögð niður hvert á fætur öðru á síðastliðnum árum og áratugum af einmitt þessum flokkum (Forseti hringir.) sem eru að leggja til frávísunartillögu. Það fylgja víst fjármunir og það er verið að bæta fjármunum í málefni barna og það er ekki rétt að þessi áætlun sé ekki fjármögnuð.