barnavernd.
Virðulegur forseti. Eins mikilvægt og það er að bæta lög um barnavernd til að styrkja þann málaflokk þá eru enn alvarlegir vankantar á því frumvarpi sem hér er til afgreiðslu í dag. Sérstaklega ber þar að nefna að margra mati einn mikilvægasta kafla frumvarpsins, kaflann um fóstur, sem snýr að börnunum í samfélaginu sem eru í hvað viðkvæmustu stöðunni. Málinu var frestað í vor vegna ágalla á þeim kafla og var ætlunin að nýta sumarið til þess að laga þau atriði. Því eru það mikil vonbrigði að svo hafi ekki verið gert og kaflinn birtist nánast óbreyttur. Það er ekki nóg að vísa til þess að samtöl hafi átt sér stað í sumar og að þessi mikilvægi kafli um börnin í viðkvæmustu stöðunni verði lagaður síðar með reglugerð. Frá því að afgreiðslu frumvarpsins var frestað í vor hafa einmitt komið fram ítrekaðar upplýsingar um hve mikilvægt er að styrkja stöðu barna í fóstri. Því höfum við lagt það til að málinu verði vísað (Forseti hringir.) frá svo hægt sé að klára þennan kafla og frumvarpið verði fullgert.