158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

barnavernd.

78. mál
[15:01]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um frumvarp til laga um barnavernd og bara svo að því sé haldið til haga voru gerðar miklar breytingar eða lagðar til breytingar í nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar síðastliðið vor. Það voru 20 aðgerðir og 18 af þeim rötuðu inn í þetta frumvarp, þ.e. ráðuneytið tók þær inn í frumvarp sitt. Fyrir það ber að þakka og mér finnst það vera til marks um að hlustað hafi verið á þingið. Það voru þarna tvær aðgerðir sem duttu út vegna þess að umsagnaraðilar gerðu athugasemdir við það í samráðsferli, í samráðsgátt stjórnvalda þegar það var lagt þangað inn í annað sinn. En ég vil bara nefna að það eru rúm 20 ár síðan þessi lagabálkur var endurskoðaður í heild sinni. Það kemur fram í greinargerð frumvarpsins að endurskoðun á fósturkaflanum og reglugerðum þar að lútandi (Forseti hringir.) stendur yfir og við lögðum áherslu á það í nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar síðastliðið vor að sú vinna héldi (Forseti hringir.) áfram. Við höfum fengið svör frá ráðuneytinu um að það muni gerast þannig að mér þykir það ekki ástæða til að fresta þessu máli og afgreiða það ekki nú.