barnavernd.
Frú forseti. Öðruvísi mér áður brá. Það er hreinlega hlálegt að standa hér og hlusta á fulltrúa stjórnarandstöðunnar hér koma upp, jafnvel sömu aðila og sömdu um það í þinglokasamningum síðastliðið sumar að þetta mál, sérstaka barnaverndarmál sem allir bera svo mjög fyrir brjósti, mál sem eru mestu kjarabætur og umönnunar- og gæskubætur sem börnin okkar hafa fengið síðustu 20 ár, að þeir skuli koma hér, hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar, og láta eins og hér hafi ekkert verið gert í sumar. Hér skorti allt í sambandi við fósturkaflann og hér sé bara allt saman í steik, óvönduð vinnubrögð.
Hvernig væri að þið létuð einhvern tímann marka þau orð sem þið hafið sjálf skrifað undir eins og síðastliðið vor? Það hefur verið unnið stórkostlega í sumar við þetta frumvarp, nákvæmlega. Það hefur orðið gjörbreyting (Forseti hringir.) á fósturkaflanum og það er engu líkara en hv. stjórnarandstaða hafi aldrei stigið fæti inn í hv. velferðarnefnd (Forseti hringir.) og hafi yfirhöfuð ekki kynnt sér frumvarpið. Þannig að skömmin er algerlega ykkar. Ef þið haldið í eina mínútu að ég myndi standa fyrir því að (Forseti hringir.) svipta börnin okkar þeim réttarbótum sem þetta frumvarp veitir þeim þá er það mesti misskilningur.
(Forseti (ÞSv): Forseti bendir hæstv. ráðherra á að það ber ávallt að ávarpa forseta.)