barnavernd.
Virðulegur forseti. Vegna orða hæstv. mennta- og barnamálaráðherra vil ég bara taka fram að samningar um þinglok ná ekki yfir gröf og dauða og það er enginn hér inni sem hefur samið um þinglok með þeim hætti að menn láti efnisatriði tiltekinna mála lönd og leið. (Mennta- og barnamrh.: Skrifuðu undir.) Lönd og leið. Hér var samið um að þetta tiltekna mál sem hér um ræðir færi í frekari vinnslu í ráðuneytinu og það var samið um það af ástæðu. Það var tekið fyrir í þinglokasamningum af ástæðu vegna þess að menn voru sammála um það, allir nema hæstv. ráðherra þá, að málið væri vanbúið. Nú er hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sammála því mati okkar sem við lögðum fram síðasta vor, fagnaði þeim breytingum og ég fagna þeim breytingum og þeirri vinnu sem var gerð á málinu í sumar en örlítið betur má ef duga skal. Það er enginn hér á móti framgangi málsins sem slíku, frekar hitt að það eru allir hér mjög áfram um að vel takist til og það verði hér heildstæð ný barnaverndarlög sem hægt er að starfa eftir. (Mennta- og barnamrh.: Þau geta beðið aðeins lengur, blessuð börnin.)