158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

barnavernd.

78. mál
[15:07]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Fimm eru hærri en fjórir. Mig langar til að koma hingað upp og bregðast við orðum hæstv. menntamálaráðherra þegar kemur einmitt að þinglokasamningum því að þegar samið er um þinglok og kannski flýtimeðferð einhverra mála, að einhver mál komist í forgang á næsta þingi, er ekki þar með sagt að stjórnarandstaðan sé að ákveða að hún samþykki tiltekið mál. En varðandi velferðarnefnd og vinnuna sem þar hefur átt sér stað þá sat ég í velferðarnefnd á síðasta þingvetri þar sem þetta mál var m.a. til umræðu og það var algjörlega vanbúið. Það eru engar ýkjur. Það er mörgum spurningum enn ósvarað og ég bind vonir við að það verði tekin upp vinna í velferðarnefnd núna á milli umræðna, m.a. varðandi fósturkaflann og m.a. varðandi það hvernig við tryggjum þjónustu fyrir einstaklinga 18–20 ára. Því að það kemur ekki skýrt fram hérna í þessum lögum. Það er ýmislegt sem við getum gert betur í þessu annars ágæta máli þannig að ég vil ítreka að við vöndum vinnuna okkar, róum okkur aðeins og tökum málefnalega umræðu.