158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

barnavernd.

78. mál
[15:09]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það var áhugavert að hlusta hér á hæstv. barna- og menntamálaráðherra. Ég held að þessi framganga sé kannski ekki algjört einsdæmi en þetta er fágætt, sem betur fer. Kannski er það svo að sannleikanum verður hver sárreiðastur. Staðan er þessi, virðulegi forseti, eins og kom fram hjá hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni, sem benti á að þetta sé mjög viðkvæmur málaflokkur, að það hefur verið unnið að því eins og menn geta gert í breiðri pólitískri sátt því að þú finnur ekki, virðulegi forseti, held ég, neinn hv. þingmann, hvorki nú né áður og örugglega aldrei í framtíðinni, sem vill gera eitthvað annað en að vera með eins góða umgjörð og mögulegt er um málaflokka eins og þennan. Það er vont, virðulegi forseti, ef það eru einhverjir hæstv. ráðherrar eða hv. þingmenn sem láta liggja að því að hlutirnir séu með einhverjum öðrum hætti. Það er ekki svo og við getum verið ósammála um margt, virðulegi forseti, en fram til þessa hefur verið góð pólitísk sátt um að vanda til verka í málum eins og þessu og ég vona að þannig verði það í framtíðinni þó svo að sumir hafi aðeins misst sig núna þessar síðustu mínútur.