barnavernd.
Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði með öllum þessum greinum en vek sérstaka athygli á 40. gr. frumvarpsins um endurskoðun ráðstafana. Það er þetta atriði sem ég nefndi hér í fyrri ræðu minni, að hér er búið að bæta við viðbótarskilyrði sem krefst verulega breyttra aðstæðna foreldris svo að það geti endurskoðað ráðstöfun og fengið barn sitt aftur úr fóstri. Það er enginn rökstuðningur, ég hef alla vega ekki fundið hann, í greinargerðinni fyrir því hvers vegna er verið að herða skilyrðin. Í núverandi lögum er eingöngu krafist breyttra aðstæðna. Hér eru áskildar verulega breyttar aðstæður og þetta skiptir miklu máli. Þetta eru bara strangari kröfur og munu leiða til þess að færri börn fara þá aftur til foreldra sinna. Þetta er svona atriði sem ég held að væri einmitt gott að velferðarnefndin skoði vel á milli umræðna. En ég sem sagt segi já.