aðgangur barna að samfélagsmiðlum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn, gott andsvar. Já, hv. þingmaður, það er ástæða til að hafa áhyggjur en samt sem áður í þessu tilviki, þegar við erum að tala um að þetta eigi smám saman að síast inn í þjóðarsálina, þá sé ég ekki fyrir mér að það verði endilega nein breyting á eldri ungmennum okkar í dag hvað lýtur að aðgangi þeirra að þessum samfélagsmiðlum því þeir verða auðvitað opnir. Þeim verður ekkert læst. TikTok verður enn þá til staðar. Foreldri sem er búið að leyfa börnunum sínum að vera á þessum samfélagsmiðlum, og einstaklingurinn er orðinn 13, 14 ára gamall, mun ekki allt í einu stíga inn og hlutirnir verði einhver stökkbreyting. Þess vegna segi ég: Þetta er langhlaup fyrir okkur, hv. þingmaður, og meira sem við erum þá að byggja til framtíðar. Sannarlega er það mjög dapurt ef eitthvað af því sem við erum að gera myndi mögulega verða þess valdandi að börnin okkar láti ekki vita. Staðreyndin er bara sú að þau láta ekki vita í dag. Það er það sorglega.