aðgangur barna að samfélagsmiðlum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Ziemsen fyrir gott andsvar. Áður var það svo og er enn, á meðan við erum að vinna að frumvarpinu, að það verði að lögum, að það hafa ekki verið sett lög um aldursviðmið á samfélagsmiðlum. Þessi 13 ár sem mikið er talað um að sé viðmiðið inn á samfélagsmiðla gilda í raun bara um vinnslu persónuupplýsinga varðandi börnin. Í rauninni er þetta því í fyrsta skipti sem við erum að koma með heildstætt frumvarp sem lýtur að því að reyna að takmarka aldurinn inn á samfélagsmiðlana þannig að það sé sagt. Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni, það er í raun dapurt að sjá að börnin okkar hafa verið mismunandi sterk fyrir og mismunandi viðkvæm. Þau hafa jafnvel verið hvött til að taka sitt eigið líf. Þau eru lögð í einelti, þeim líður hræðilega og það liggur alveg fyrir. Þau eru fengin til að gera alls konar hluti sem þeim hefði annars aldrei hefði dottið í hug að gera ef hægt er að fanga þau og véla þau til að gera einhverja hluti. Það eru þarna einhverjir óprúttnir andstyggðaraðilar sem eru hreinlega þjálfaðir í því að finna út hvaða barn er veikt fyrir; getum við náð þessum einstaklingi á okkar vald og annað slíkt. Þetta er mjög harður heimur fyrir börnin okkar og hann fer í raun bara harðnandi. Heimur versnandi fer hvað þetta varðar. Ég bind miklar vonir við það, virðulegi þingmaður, og trúi því, þrátt fyrir að þetta taki tíma að raungerast hjá okkur, að með því að hafa tækið þá munum við heldur betur styrkja foreldrana og styðja við þá til þess að þeir geti fylgt þessu eftir.