aðgangur barna að samfélagsmiðlum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu um þetta mál sem er um margt áhugavert og varðar aðgang barna að samfélagsmiðlum. Sjálfur á ég ung börn, börn á unglingsaldri, þannig að ég kannast ágætlega við þessar áskoranir en ég staldra aðeins við það í þessu frumvarpi, hvað skal segja, að það er ekkert sem tryggir eftirfylgni með lögunum. Þetta er því frekar eins og yfirlýsing sem er auðvitað góðra gjalda verð og mun þá eftir atvikum, hljóti málið framgang hér, til að mynda gagnast foreldrum sem vantar jafnvel einhvern ytri stuðning til að setja mörk. Í grunninn er þetta auðvitað fyrst og fremst svona foreldramál þó að ég geri mér fyllilega grein fyrir því að það er stundum við ofurefli að etja, milljarðafyrirtæki sem hafa það að markmiði sínu að fá sem flesta notendur til að verja sem lengstum tíma í forritinu eða á samfélagsmiðlinum og það er erfitt fyrir ung börn að standast það.
Ég vil nota tækifærið til að spyrja hv. þingmann: Heyrði ég rétt að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hafi lagt til að þetta mál færi til umfjöllunar í velferðarnefnd, hvar hv. þingmaður er formaður, í stað þess að það fari í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem svona fjarskiptamál eins og þessi eru yfirleitt til umfjöllunar?