158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

aðgangur barna að samfélagsmiðlum.

285. mál
[16:29]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Ég vil aðeins nefna, jú, við erum núna að beina þessu til foreldra en við erum ekki að fría stafrænu fyrirtækin ábyrgð. Ég held að það sé enginn sem sér þetta þannig að þetta sé annaðhvort eða. Það er löggjafinn núna og foreldrarnir sem eru þeir sem eru með ábyrgðina á að framfylgja þessum lögum en að stafrænu fyrirtækin séu þar með stikkfrí myndi ég nú alls ekki halda og ég veit til þess og hef heyrt að það eru málaferli í gangi gagnvart sumum þessara fyrirtækja vegna einstakra skaðabótamála sem hafa komið upp.

Ég vil líka bara nefna það hérna að við undirbúning þessa frumvarps var sérstaklega litið til skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum, þannig að það er í mörg horn að líta, og til athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA við sambærilegt norskt frumvarp. Það er auðvitað búið að skoða hvernig þessu er háttað í öðrum löndum og Ísland er ekki fyrsta þjóðin sem er að ríða á vaðið með nákvæmlega þetta. Við höfum séð þetta gerast í fleiri löndum, hvort Ástralar voru fyrstir, ég er nú ekki alveg viss, en það hefur síðan reynst vel samkvæmt þeim rannsóknum sem hafa verið gerðar í kjölfarið.

Ég sé að hv. þingmaður er kominn út úr salnum þannig að ég veit ekki hvort hann heyrir mikið það sem eftir er af þessu andsvari. En ég held reyndar að við séum, hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson og ég, svo sem alveg á sömu blaðsíðu í þessu. En nú erum við bæði svona tiltölulega nýir þingmenn og ég var nú að velta því fyrir mér áðan hvernig það atvikaðist að niðurstaðan er einhvern veginn um hvaða nefnd taki við málum, því að allsherjar- og menntamálanefnd og velferðarnefnd skarast að mörgu leyti stundum í málum. Einhvers staðar hlýtur þar að liggja ákvörðunin um að þetta mál eigi betur heima í velferðarnefnd heldur en allsherjarnefnd. Ég alla vega hlakka mjög til að fá málið til velferðarnefndar ef það reynist vera þannig að það komi þangað og við munum gera okkar besta til að gera því góð þingleg skil í meðförum málsins.