158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

aðgangur barna að samfélagsmiðlum.

285. mál
[17:42]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Það var nú svo sem engin sérstök spurning að því er ég greindi best en hún vék að nokkrum þáttum sem mér finnst alveg skipta máli. Eins og kom fram í ræðu minni þá geri ég mér grein fyrir því að hér er um mál að ræða sem varðar hagsmuni barna. Það er hins vegar í eðli sínu tæknimál og ætti því að fara til allsherjar- og menntamálanefndar, eins og ég skil reglurnar. Svo eru svo sem dæmi um það í þingstörfum að fastanefndir Alþingis leiti umsagnar þeirra nefnda ef mál skarast að einhverju leyti, hvernig svo sem verður leyst úr þessu. En ég segi þetta af ástæðu og nefndi hér tvö mál sambærilegs eðlis sem voru til umfjöllunar, annað er eiginlega bara mjög svipað, á síðasta þingvetri. Það mál varðar vernd barna, tillaga til þingsályktunar um vernd barna og ungmenna á stafrænum vettvangi, sem Skúli Bragi Geirdal varaþingmaður flutti og sneri akkúrat að því. Þar var 1. liðurinn, með leyfi forseta, að fela mennta- og barnamálaráðherra að „hækka lágmarksaldur barna til að stofna og nota reikninga á samfélagsmiðlum úr 13 árum í 15 eða 16 ár“.

Þetta mál gekk eðlilega til allsherjar- og menntamálanefndar og enginn velti því eitthvað sérstaklega fyrir sér. Ég hef skilið reglurnar svona. Það kann að vera að lögfræðingarnir í ráðuneytinu hafi ráðlagt eða telji eðlilegra að málið fari til velferðarnefndar en það er Alþingis að ákveða það á endanum. Og sama hvað verður í þeim skilningi þá hef ég engar stórkostlegar áhyggjur, bara þannig að það sé sagt.