aðgangur barna að samfélagsmiðlum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið við þessu andsvari. Það er bara ánægjulegt að heyra að hv. þingmaður skilur bæði verkefnið og þessar áskoranir og mætir líka í málið með opnum huga, ekki búinn að móta sér skoðun en hún getur þá fallið báðum megin. Ég kannski byrja á því að tengja við hans upplifun af umfjöllun um símafríið. Það var mjög áhugavert að hlusta á unga fólkið og það er alltaf gott að hlusta á unga fólkið þegar kemur að þessum málum. Ég hjó einmitt hjó eftir þessu varðandi það að það komi eitthvað í staðinn, að við séum ekki bara að fjarlægja einhverja afþreyingu úr lífi barnanna okkar heldur tryggjum við einmitt að það sé framboð af einhverjum jákvæðum hlutum til að gera í skólanum; öflugar félagsmiðstöðvar, það sé líf og fjör á göngunum, góðar skólalóðir og fleira sem hægt er að gera. Þó að vissulega séu eflaust einhverjir, líkt og kom fram, sem kannski nota símann sem ákveðinn flótta frá félagslegum aðstæðum þá eru félagslegar aðstæður líka hluti af námi barna og því að þroskast og verða fullorðinn. Það er hættulegt ef við búum til þannig umhverfi að við sættum okkur við að einhverjir fari á mis við þann þroska að vera hluti af samskiptum og eiga samtöl augliti til auglitis. Ég held að við verðum að taka því alvarlega og einnig hvernig símarnir, og sérstaklega samfélagsmiðlarnir, geta ýtt undir félagslega einangrun varðandi hópamyndun, þú ert í ákveðnum hópum o.s.frv., í stað þess að fólk sé að hittast í raunveruleikanum. Það eru margir punktar í þessu.
En í seinna andsvari — og ég vil eiginlega, óháð því í hvaða nefnd þetta fer, að það verði skoðað sérstaklega af því að það kom fram eftir samráð við unga fólkið að það vildi hafa þarna allt að eitt ár í lok grunnskóla til að læra á samfélagsmiðlana. En ég vil spyrja hv. þingmann og líka bara þingheim í nefndarstörfunum fram undan: Ef við miðum við þetta, 15 ár út frá fæðingarári, þá erum við að tala um eftir áramót í 9. bekk. Getur þetta skapað flækjustig innan grunnskólanna, að hálfur grunnskólinn sé á samfélagsmiðlum og hálfur grunnskólinn ekki? Væri eðlilegra, ef við förum í þessa vegferð, að það væri miðað við fæðingarárið 16 ára, sem væri þá eftir áramót í 10. bekk, (Forseti hringir.) þegar einmitt þessi lokaárgangur er að fara að hefja nýja vegferð út úr grunnskólanum inn í framhaldsskólann? (Forseti hringir.) Væri það eðlilegri skipting, bæði varðandi skólabraginn og líka þessa breytingu sem á sér stað á þeim aldri?