158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.

286. mál
[18:17]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sitt innlegg. Mér finnst stundum takturinn í þessari ríkisstjórn vera einmitt þess efnis að þetta séu frekar orð en efndir. Hæstv. ráðherra fjallaði í löngu máli um barnabætur í framsöguræðu sinni. Í greinargerðinni með þessari þingsályktunartillögu segir, með leyfi forseta: „Þessi aðgerð er í samræmi við helstu áherslur fjármálaáætlunar 2027–2031 um að þróun barnabóta verði sett í fastari skorður þannig að fjárhæðir þeirra haldi verðgildi sínu.“

Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 er nafnverðið það sama, krónutalan er sú sama. Mér reiknast svo til að barnabætur hafi lækkað að raunvirði um 9% í tíð þessarar ríkisstjórnar, sem er bara þveröfugt við þetta og í fjárlögunum er þetta bara svona, framhaldið er þetta. Það er auðvitað þannig að fögur orð í þingsályktunartillögu hvað þetta varðar eru hjóm eitt þegar fjárlögin eru annars eðlis.

Þá kem ég að því sem er kannski frekar brýning og það er þessi verri hluti ræðu hæstv. ráðherra. Mér finnst að hún og hennar flokkssystkini skipti oft fólki hér í þessum sal í góða og vonda fólkið. Það er svo mikil einföldun og er ekki til neins. Öll erum við sammála að flestöllu leyti um markmiðin sem að er stefnt. Það eru hins vegar leiðirnar sem skipta máli. Hæstv. ráðherra talaði til að mynda um að tekjutengingar hjá öryrkjum væru afar slæmar, ef ég skildi hana rétt, kannski of miklar, en svo vill hún í hina höndina auka tekjutengingar hvað viðkemur barnafjölskyldum. Ég tel að þetta sé auðvitað atriði sem þurfi að skoða betur og ég get ekki annað en nefnt — þegar við fáum hérna þingmenn, (Forseti hringir.) t.d. skjöl frá fjármálaráðuneytinu um jólabónusinn svokallaða, þar sem einstaklingar sem eiga milljarð í eigið fé (Forseti hringir.) eru að fá peninga frá íslenska ríkinu án nokkurra skerðinga og það er í krafti og umboði hæstv. ráðherra.

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutímann.)